Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Bætur hagstæðari en sauðfjárrekstur: „Við höfum betra upp úr því að taka ekki fé“

Mynd úr myndabanka
Mynd úr mynda­banka

Riðuveiki komst upp í sauðfé í Skaga­firði síðari hluta ársins 2020; slátrun gripa hófst svo haustið 2021.

Atli Már Traustason er bóndi á Syðri-Hofdölum í Skaga­firði; hann þurfti að slátra 670 gripum í desember árið 2020, eftir að riða greindist í aðkomu­hrút á bæ hans.

Að slátrun lokinni var fjárhúsið þrifið frá toppi til táar; öllu komið í rétt og gott stand; úttekt gerð. Tvö ár þurfa síðan að líða þar til bændur mega hefja búskap aftur; samkvæmt þessu ættu flestir bændur í Skaga­firði að geta tekið fé í haust; einhverjir virðast þó ekki ætla að ráðast í verkið nú.

„Staðan er einfald­lega þannig núna að við höfum betra upp úr því að taka ekki fé, og við höfum möguleika á því að fram­lengja um eitt ár, þannig að sú sorglega staða er uppi að ég reikna með því að við geymum það í ár og tökum ekki fé fyrr en þá haustið 2024,“ sagði Atli í samtali við RÚV.

Bændur er þurftu að slátra sauðfé sínu fá borgað líkt og þeir standi í fullum búrekstri;  kostnaður er vísitölu­tryggður; þannig að greiðsla til þeirra fylgir verð­laginu.

Atla sýnist sem svo að bændur í sveitinni virðist almennt vera á þeirri skoðun að fresta um ár að hefja búfjár­rekstur aftur:

„Þetta er náttúru­lega bara eins og hver annar „business“ og þó maður glaður vildi nú fá fé aftur á líf í húsið þá verður maður samt að reyna úr því sem komið er að hafa sem skást út úr þessum samningi sem við gerðum.“

Atli nefnir einnig að mikla fjár­festingu þurfi ætli fólk að taka inn sauðfé á ný; duga förgunar­bæturnar ekki nema upp í helming þess kostnaðar að kaupa nýjan bústofn; Atli þyrfti að borga um sjö milljónir til að kaupa sama eða svipaðan fjölda gripa.

„Svo nátt­úrlega tekur þetta örugglega einhver fjögur, fimm ár að ná upp einhverjum afurðum á búinu.“

„Við hittumst tveir í gærkvöldi og vorum eiginlega sammála um það að þessi samningur sem okkur er gert að skrifa undir er í rauninni mjög góður starfsloka­samningur. Það er mjög erfitt að fara inn í þetta aftur af fullu og eiginlega ekki gerlegt nema að vera með einhvern annan rekstur með til þess að taka þennan skell.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim