Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Illvígar deilur innan skátanna eftir martraðaferð ungmenna – Stjórn sögð brjóta eigin reglur

Harpa Ósk Valgeirsdóttir skátahöfðingi neitar öllum ásökunum –
Harpa Ósk Val­geirs­dóttir skáta­höfð­ingi neitar öllum ásök­unum – Mynd: RÚV skjáskot

Miklar deilur hafa ríkt innan skáta­hreyf­ing­ar­innar á Íslandi síðan í fyrra þegar tæp­lega 150 Íslend­ingar fóru á skáta­mót í Suður Kóreu. Ferðin breytt­ist í martröð vegna hita, regns, skor­dýra og skipu­lags­leysis af móts­höld­urum.

Í þessum hópi voru 108 ung­menni á aldr­inum 14 til 18 ára og þurftu þau að greiða tæpar 700 þús­und krónur fyrir ferð­ina. Í nýjum Kveiks­þætti gagn­rýna for­eldrar og far­ar­stjórar ferð­ar­innar harð­lega skát­ana fyrir ýmsa hluti sem snúa að ferð­inni.

For­eldr­arnir halda því meðal ann­ars fram að afgangur hafi verið af ferð­inni og hægt hefði verið að greiða öllum ung­menn­unum rúmar 40 þús­und krónur til baka eftir ferð­ina. Þá halda þau því einnig fram að þeim hafi verið lofað slíkri greiðslu yrði til afgangur.

Eru ekki ferðaskrifstofa

Í umfjöllun Kveiks er líka sagt frá því að stjórn Banda­lags íslenskra skáta hafi brotið reglur félags­ins og lög en félagið tók 10% umsýslu­gjald vegna ferð­ar­innar. Aðeins ferða­skrif­stofur mega taka umfram­kostnað en BÍS er ekki skráð sem slík.

Þá lýstu 70 for­eldrar yfir van­trausti á stjórn BÍS á skáta­þingi sem haldið var eftir mótið og er hægt að lesa þá yfir­lýs­ingu hér fyrir neðan.

„Til full­trúa á skáta­þingi.

Við, for­eldrar far­ar­hóps barna og ung­menna sem fóru á alheims­mót skáta árið 2023 skorum á að aðilar Skáta­þings sam­þykki EKKI árs­reikn­inga Banda­lags íslenskra skáta. Við óskum eftir því að hagur þeirra sem greiddu upp­gefið móts­gjald, í góðri trú, verði hafður að leið­ar­ljósi. Það skýtur skökku við að stjórn BÍS geti greitt far­gjöld sumra þátt­tak­enda (þótt ítrekað hafi komið fram að það yrði ekki gert) sem og sjálfri sér laun vegna álags, ver­andi á föstum launum, úr sjóði sem þátt­tak­endur alheims­móts hafa lagt allt sitt í að safna fyrir ásamt dyggum stuðn­ingi aðstand­enda. Við lýsum því van­trausti á að stjórn BÍS hafi farið rétt með fjár­muni þátt­tak­enda og óskum eftir því að feng­inn verði óháður aðili í að yfir­fara reikn­inga og annað fjár­magn sem við­kemur þess­ari ferð.

Með von um jákvæðar und­ir­tektir og að hagur barna og þátt­tak­enda í skáta­starfi verði hafður að leið­ar­ljósi.“

Stjórn BÍS neitar öllum ásök­unum og hefur gagn­rýnt umfjöllun Kveiks en félagið hefur sakað RÚV um að fá upp­lýs­ingar og við­töl hjá BÍS á fölskum for­sendum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn