Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Enn þegja Agnes biskup, Sr. Ninna og Pétur um mál séra Gunnars: „Ég tjái mig ekki um það mál“

Mannlíf hefur árangurs­laust reynt að fá svör frá æðstu ráða­mönnum hinnar íslensku Þjóð­kirkju vegna máls séra Gunnars Björns­sonar, sem neitað var um að fá að jarðsetja góða vinkonu sína sem hafði farið þess á leit á hennar síðustu dögum að hann myndi sjá um útför hennar. Fjöl­skyldu konunnar var mjög brugðið vegna neitunarinnar, og er hreinlega í sárum.

Ninna Sif Svav­ars­dóttir bann­aði að séra Gunnar sæi um útför­ina.

Líkt og Mannlíf þá hefur fjöl­skyldan árangurs­laust reynt að fá rökstudd svör frá Agnesi biskup, biskups­ritara/samskipta­stjóra – Pétri Georgi Markan, og prestinum í Hvera­gerðis­kirkju, Sr. Ninnu Sif Svavars­dóttur.

Pétur Georg Markan er sam­skipta­stjóri/bisk­ups­rit­ari Þjóð­kirkj­unnar, en forð­ast hins vegar sam­skipti við Mannlíf vegna máls séra Gunnars Björns­sonar.

Mannlíf sendi fyrir­spurn um málið á biskups­stofu, en biskups­ritari/samskipta­stjóri Þjóð­kirkjunnar, Pétur Georg Markan, hefur ekki svarað neinu.

Fyrir­spurnin var send til Péturs þann 8. september síðastliðinn, og var einföld – nákvæmlega svona:

Komdu sæll og blessaður Pétur, og afsakaðu ónæðið. Svanur Már Snorrason heiti ég og er blaða­maður á Mannlífi. Ég er með fyrir­spurn. Þegar prestar komast á „aldur“ – 67 til 70 ára, mega þeir samt sem áður sjá um til dæmis brúðkaup, skírnir og jarðar­farir? Eða hætta þeir einfald­lega allri þjónustu á vegum Kirkjunnar eftir að eftirlauna­aldri er náð? Með kærri kveðju og von um góð viðbrögð, Svanur

Ekkert svar, ekkert hljóð.

Blaða­maður Mannlífs átti í samskiptum við Sr. Ninnu í Hvera­gerðis­kirkju, sem sagði einfald­lega við blaðamann Mannlífs:

„Ég tjái mig ekki um það mál við fjölmiðla.“

Blaða­maður spurði á móti hvers vegna hún vildi ekki tjá sig um málið við fjölmiðla, og hvort hún eða Þjóð­kirkjan hefðu eitthvað að fela:

Blm. Mannlífs:

„Hvers vegna ekki? Það er algjör þögn Þjóð­kirkjunnar í þessu máli. Hafið þið eitthvað að fela? Veit ekki til annars en að séra Gunnar Björnsson sé með hreina sakaskrá. Einhver er ástæðan eða ástæðurnar fyrir þögn ykkar. Ég vísa aftur í upplýsingalög nr. 140/2012, og ítreka spurningar mínar.“

En þá heyrðist ekkert nema ærandi þögnin; sama þögnin og virðist vera orðin að einkennis­merki Þjóð­kirkjunnar hér á landi; að reyna að þagga mál niður án nokkurra svara eða útskýringa. Kallast einfald­lega þöggun, og er ekki til sóma og hreinlega til skammar fyrir opinbera og risastóra stofnun sem haldið er uppi með skattfé almennings. Og það er ekki lítið fé.

Mannlíf hefur undir höndum mörg samskipti sonar konunnar sem jarð­sungin var í Hvera­gerðis­kirkju og var neitað um að séra Gunnar Björnsson sæi um útförina.

Þar stendur ekki steinn yfir steini.

Vísa Agnes biskup og Sr. Ninna hvor á aðra varðandi það hver það var sem átti síðasta orðið varðandi bannfæringu séra Gunnars Björns­sonar. Agnes biskup segir að ákvörðunin hafi verið tekin af Sr. Ninnu, en hún aftur á móti segir að Agnes biskup hafi haft síðasta orðið.

En frá biskups­ritaranum/samskipta­stjóranum Pétri Georg Markan hefur hins vegar hvorki heyrst hósti né stuna; þegir þunnu hljóði, sem er í hrópandi andstöðu við starf hans.

Mannlíf er hvergi nærri hætt að fjalla um málið, og á morgun verður sendur ítarlegur spurningar­listi á æðstu stjórn­endur Þjóð­kirkjunnar, samskipta­stjóra og Sr. Ninnu Sif Svavars­dóttur, og þá með vísan í upplýsingalög.

Íslensku Þjóð­kirkjunni ber að svara fyrir­spurnum frá fjöl­miðlum, hvort sem spurningarnar eða efnið er á jákvæðu nótunum eður ei, þægilegar eða óþægilegar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim