Tobba Marinósdóttir segir frá erfiðum meiðslum sem eru að hrjá hana; mńuði eftir aðgerð.
Tobba bæði spyr og svarar:
„Er hægt að „djúsa“ yfir sig? Stutta svarið er já.“
Hún bætir við:
„Þegar kona á enga samstæða bolla lengur missir og brýtur allt, öskurgrenjar í verstu krampaköstunum í sturtu á næturnar og hefur ekki stjórn á fingrunum, þarf að hægja á sér.
Taugaskaði og mögulega varanlegur taugaskaði – er eitthvað minna heilsusamlegt en djúsarnir mínir góðu. Nú rúmum mánuði eftir aðgerð er ég enn með litla tilfinningu í þremur fingrum, sef í spelkum og fæ ógeðslega taugaverki.“
Tobba vonar það besta og dásamar hvíldina:
„Ekki vanmeta hvíld. Aldrei. Jess brjálað að gera er ekki alltaf gott. En kona getur vonandi lært af þessu.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir