Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Jóhann Páll spyr Bjarna Ben: „Hvað þarf að ganga á svo stjórnvöld viðurkenni stríðsglæpi Ísrael?“

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður.
Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður.

Jóhann Páll Jóhanns­son lét Bjarna Bene­dikts­son heyra það á þingi undir liðnum stöf þings­ins.

Í fyrra­dag flutti Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sterka ræðu undir liðnum störf þings­ins. Orðum sínum beindi hann að Bjarna Bene­dikts­syni, nýjum utan­rík­is­ráð­herra. Bjarni hafði dag­inn áður sagt í Silfrinu á RÚV, að stigi Ísra­els­her yfir þær línur sem alþjóða­lög marka, myndi Ísland for­dæma það.

Jóhann Páll ákvað því í ræð­unni að fara yfir stöð­una í Palest­ínu. „Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin áætlar að 2.800 manns hafi verið drepin á Gaza-svæð­inu síð­ustu 11 daga, þar af 1.400 konur og börn. Gerðar hafa verið árásir á spít­ala og sjúkra­stöðvar, segir stofn­unin, sem gengur í ber­högg við alþjóð­leg mann­úð­ar­lög.“ Og Jóhann Páll hélt áfram: „Alþjóða­ráð Rauða kross­ins hefur sent út neyð­ar­kall vegna fyr­ir­mæla ísra­el­skra yfir­valda um að íbúar Gaza um yfir­gefi heim­ili sín innan sól­ar­hrings. Þetta er brot á alþjóða­lögum, segir Rauði kross­inn. Það er líka brot á alþjóða­lögum að skrúfa fyrir vatn, raf­magn, elds­neyti, mat og lífs­nauð­synjar til óbreyttra borg­ara – og munum að hátt í helm­ingur íbúa Gaza-svæð­is­ins eru börn og ung­menni.“

Þá sagði hann að sér­fræð­ingar Sam­ein­uðu þjóð­anna hefðu for­dæmt grimmd­ar­verk Hamas-liða á hendur Ísraela en einnig morð Ísra­els­hers á sak­lausa borg­ara Gaza og Vestur-bakk­ans. „Alþjóða­ráð Rauða kross­ins og sér­fræð­ingar Sam­ein­uðu þjóð­anna draga enga fjöður yfir að báðir aðilar fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs eru að fremja stríðs­glæpi.“

Spyr Jóhann að lokum hvað þurfi til svo Bjarni Bene­dikts­son og rík­is­stjórn Íslands for­dæmi  Ísraela. „Hvað þarf að ganga á til þess að íslensk stjórn­völd við­ur­kenni að hér hefur fyrir löngu verið „stigið yfir þær línur“ sem alþjóða­lög marka, að stríðs­glæpur er stríðs­glæpur sama hver fremur hann?“

Ræðuna má lesa í heild sinni hér:

Hæst­virtur utan­rík­is­ráð­herra Bjarni Bene­dikts­son sagði í Silfrinu í gær að ef Ísra­els­her stigi yfir þær línur sem alþjóða­lög marka þá myndi Ísland for­dæma það.

„Ef að stigið verður yfir þær línur þá mun ekki standa á mér að for­dæma þau brot,“ sagði hann.

Förum aðeins yfir stöð­una.

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin áætlar að 2.800 manns hafi verið drepin á Gaza-svæð­inu síð­ustu 11 daga, þar af 1.400 konur og börn. Gerðar hafa verið árásir á spít­ala og sjúkra­stöðvar, segir stofn­unin, sem gengur í ber­högg við alþjóð­leg mann­úð­ar­lög.

Alþjóða­ráð Rauða kross­ins hefur sent út neyð­ar­kall vegna fyr­ir­mæla ísra­el­skra yfir­valda um að íbúar Gaza um yfir­gefi heim­ili sín innan sól­ar­hrings. Þetta er brot á alþjóða­lögum, segir Rauði kross­inn.

Það er líka brot á alþjóða­lögum að skrúfa fyrir vatn, raf­magn, elds­neyti, mat og lífs­nauð­synjar til óbreyttra borg­ara – og munum að hátt í helm­ingur íbúa Gaza-svæð­is­ins eru börn og ung­menni.

Á fimmtu­dag gáfu sér­fræð­ingar Sam­ein­uðu þjóð­anna og full­trúar á sviði mann­úðar- og mann­rétt­inda­mála (Special Rappor­te­urs) frá sér afger­andi for­dæm­ingu á grimmd­ar­verkum Hamas-sam­tak­anna gagn­vart óbreyttum borg­urum í Ísrael. Þau hafa íslensk stjórn­völd líka for­dæmt með réttu.

Það sem full­trúar Sam­ein­uðu þjóð­anna gerðu líka er að þeir for­dæmdu ólög­legt umsátur Ísra­els­hers og árásir á palest­ínska borg­ara á Gaza. Þetta er hóprefs­ing, sögðu þeir, brot á alþjóða­lögum.

Alþjóða­ráð Rauða kross­ins og sér­fræð­ingar Sam­ein­uðu þjóð­anna draga enga fjöður yfir að báðir aðilar fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs eru að fremja stríðs­glæpi.

En hvað þarf að ganga á til þess að utan­rík­is­ráð­herra Íslands við­ur­kenni það með afdrátt­ar­lausum hætti?

Hvað þarf að ganga á til þess að íslensk stjórn­völd við­ur­kenni að hér hefur fyrir löngu verið „stigið yfir þær línur“ sem alþjóða­lög marka, að stríðs­glæpur er stríðs­glæpur sama hver fremur hann?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum