Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar

„Hafðu kjarn­orku­vopnin til­búin til að skjóta þegar í stað“

Heimir Már Pétursson
Heimir Már Pét­urs­son Heimir Már vill að Frakk­lands­for­seti noti kjarn­orku­vopn gegn Rússum Mynd: Aðsend

Heimir Már Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Flokks fólks­ins, hefur skorað á Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seta að láta her­lið halda til Úkraínu og gera kjarn­orku­vopn til­búin til notk­unar.

Heimir setti fram þessi skila­boð í athuga­semd við færslu Macrons á sam­fé­lags­miðl­inum X í gær en mbl.is sagði frá mál­inu.

Frakk­lands­for­seti birti færsl­una eftir að Rússar gerðu árás á járn­braut­ar­stöð í úkra­ínsku borg­inni Dnipro. Að minnsta kosti 14 manns létu lífið og jafn­margir særð­ust í árásinni.

Í færslu sinni lýsti Macron yfir stuðn­ingi við Volodimír Selenskí, for­seta Úkraínu, og úkra­ínsku þjóð­ina. Hann kall­aði jafn­framt eftir auknu alþjóð­legu átaki til að tryggja rétt­látan og var­an­legan frið. Macron sagði árásir Rússa á óbreytta borg­ara óásætt­an­legar og gagn­rýndi stjórn­völd í Moskvu fyrir að hafna frið­ar­til­lögum.

Kallar eftir hernaðarlegum aðgerðum

Athuga­semd Heimis Más var skrifuð á ensku. Þar skor­aði hann á Macron að láta af yfir­lýs­ingum og grípa til beinna aðgerða.

„Kæri Macron, hættu þessum ræðu­höldum og sendu her­menn til að berj­ast fyrir Úkraínu og Evrópu og hafðu kjarn­orku­vopnin til­búin til að skjóta þegar í stað,“ sagði Heimir í athuga­semd­inni.

Hefur látið til sín taka á X

Heimir Már hefur um nokk­urt skeið verið virkur í umræðum um alþjóða­mál á X en meðal þess sem hann hefur fjallað um eru nið­ur­stöður kosn­inga til Evr­ópu­þings­ins í sumar og svo hefur hann gagn­rýnt banda­rísk stjórn­völd fyrir að við­halda vin­sam­legum sam­skiptum við rúss­nesk stjórn­völd.

Heimir Már tók við starfi fram­kvæmda­stjóra og upp­lýs­inga­full­trúa þing­flokks Flokks fólks­ins í febr­úar á síð­asta ári. Áður starf­aði hann um ára­bil sem frétta­maður á Stöð 2 og Bylgj­unni.

Mannlíf náði ekki í Heimi við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum