Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Guðmundur Árni sagði af sér ráðherraembættinu: „Mér fannst líf og ferillinn á endapunkti“

Guðmundur Árni Stefánsson
Guð­mundur Árni Stef­áns­son Mynd: Sigurjon Ragnar tel +35489799667

Lærir af mistökum

Fyrr­verandi blaða­maður, lögreglu­maður, bæjar­fulltrúi, bæjar­stjóri, alþingis­maður og ráðherra; hann var heil­brigðis- og trygginga­mála­ráðherra 1993–1994 og félagsmála­ráðherra 1994. Vara­formaður Alþýðu­flokksins um tíma.

Guðmundur Árni sagði af sér ráðherra­embættinu í nóvember 1994. Hann var harðlega gagn­rýndur fyrir pólitískar ákvarðanir sem leiddu til þess að hann sagði af sér embætti. „Já, ég hefði getað gert hlutina betur. En ég var sá fyrsti sem tók ábyrgð á gerðum mínum. Þetta var erfiður tími en ég átta mig á því að ég gerði rétt; pólitík snýst ekki bara um eigið egó heldur líka hina stóru mynd.”

Þetta voru erf­iðir tímar og mér fannst líf og fer­ill­inn á enda­punkti en ég var sáttur í sinni; sér­stak­lega þegar frá leið.

Svo kom út bók fyrir jólin þetta ár, sem var 1994, eftir að Guðmundur Árni sagði af sér sem ráðherra: Bókin heitir „Hreinar línur“. „Þetta voru erfiðir tímar og mér fannst á einhverjum tíma­punkti að ferillinn væri á enda en þegar frá leið var ég sáttur í sinni. Ég fékk símtal örfáum dögum eftir afsögn, 11.nóvember, og ég spurður hvort ég vildi ekki bara dúndra þessu á bók einn, tveir og þrír. Ég og Kristján Þorvaldsson, vinur minn og blaða­maður, tókum höndum saman og kláruðum bókina á 10 dögum.“

„Allt á hreinu.“ Er Guðmundur Árni alltaf með allt á hreinu? „Nei, alls ekki. Ég ætla að vona að enginn sé með það.“

Guðmundur Árni Stef­ánsson hélt áfram í pólitík; var endur­kjörinn á þing 1995, 1999 og 2003 en hætti svo árið 2005.

„Ég hætti ekki í pólitík vegna þess að ég væri búinn að fá nóg af henni sérstak­lega heldur hitt að ég og flokkurinn minn hafði verið í stjórnar­andstöðu í 10 ár og það er agalegt hlut­skipti. Þeir þekkja það sem hafa verið nánast algjör­lega áhrifa­lausir í þinginu. Það reyndi á þolrifin og ég hugsaði með mér hvort það væri ekki komið að kafla­skiptum; ég var fimmtugur og hugsaði með mér hvort það væri ekki bara ágætt ef mér gæfist tækifæri til þess að skipta um hlutverk. Og það á fólk að gera reglulega og ég hef gert það í gegnum tíðina.“ Og Guðmundur Árni varð svo sendi­herra í Svíþjóð. Meira um það síðar.

Fólk talar oft um að póli­tíkusar séu svona og hinsegin og að póli­tíkin sé skítug og að henni fylgi spill­ing.

Jú, það er þessi pólitík sem togar núna í Guðmund Árna þar sem hann situr í Winnipeg. Hann talaði um vírus. „Það er eiginlega allt,“ segir hann þegar hann er spurður hvað það sé nákvæmlega sem heillar hann svona við pólitíkina. Stjórn­málin. „Fólk talar oft um að pólitíkusar séu svona og hinsegin og að pólitíkin sé skítug og að henni fylgi spilling. Það getur vel verið að það sé eitthvað til í því en fólk gleymir því oft að oft hafa pólitískar ákvarðanir áhrif á daglegt líf fólks í smáu og stóru og fólk leiðir ekki hugann að því að einhvers staðar hefur þetta verið ákveðið; verð til dæmis á mjólkur­lítra er meira og minna ákveðið af stjórn­málamönnum með beinum eða óbeinum hætti.

Guðmundur Árni Stef­ánsson sendi­herra, sem er aðal­ræðismaður í Winnipeg og meðal annars fyrr­verandi ráðherra, alþingis­maður og bæjar­stjóri í Hafnar­firði, hefur ákveðið að gefa kost á sér fyrir Samfylkinguna vegna komandi bæjar­stjórnar­kosningar í Hafnar­firði og tekur því þátt í prófkjöri flokksins 12. febrúar. Hann vill oddvita­sætið. Hann segir í viðtali við Mannlíf meðal annars frá þessari ákvörðun og áherslu­málum og hann talar um pólitíkina og sendiherra­starfið í Svíþjóð, Banda­ríkjunum, á Indlandi og í Winnipeg. Guðmundur Árni talar líka um sorgina en hann missti tvo syni sína árið 1985.

Viðtalið við Guðmund Árna Stef­ánsson má í heild sinni finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu