Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Hjörtur segir Alþingi verða hlusta á vilja þjóðarinnar: „Setur stórhættulegt fordæmi“

Alþingishúsið.
Alþing­is­húsið. Mynd: Sikeri

Hjörtur Hjart­ar­son skrif­aði um helg­ina áhuga­verðan pist­ill en í honum hvetur hann Sam­fylk­ing­una, Viðreisn og Flokk fólks­ins til að setja stjórn­ar­skrár­málið á dag­skrá en eins og frægt er orðið sam­þykkti þjóðin nýja stjórn­ar­skrá í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu árið 2012 en hún hefur ekki ennþá tekið gildi.

„Umræðan í tengslum við nýaf­staðnar kosn­ingar og for­seta­kosn­ing­arnar í vor, til dæmis varð­andi fjölda með­mæl­enda, for­gangs­röðun fram­bjóð­enda eða röðun fram­boðs­lista, jafnt vægi atkvæða og fimm pró­senta þrösk­uld­inn, und­ir­strikar brýna þörf fyrir stjórn­ar­skrár­breyt­ingar. Að ekki sé talað um auð­linda­á­kvæði og ákvæði til verndar nátt­úru lands­ins. Kjós­endur köll­uðu eftir slíkum breyt­ingum í víð­tæku lýð­ræð­is­ferli eftir hrun og síðan þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um nýja stjórn­ar­skrá 2012,“ skrif­aði Hjörtur um málið á Vísi.

Hjörtur segir að Alþingi hafi mis­tek­ist að klára málið og í raun ekki við­ur­kennt úrslit kosn­ing­anna. Stjórn­ar­skrár­fé­lagið, sem Hjörtur er með­limur í, hefur hvatt for­menn Val­kyrju­flokk­anna svoköll­uðu til að setja málið á dag­skrá.

Ófrávíkjanleg regla í lýðræði

„Nýaf­stað­inn aðal­fundur stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins hnykkti á þessu með ein­róma hvatn­ingu:

Fund­ur­inn hvetur næstu rík­is­stjórn Íslands til að svara af stór­hug ákalli kjós­enda um breyt­ingar. Ekki aðeins varð­andi efna­hags­mál heldur einnig lýð­ræði og stjórn­ar­far í land­inu.

Að við­ur­kenna úrslit kosn­inga er ófrá­víkj­an­leg regla í lýð­ræð­is­ríki. Að brjóta þá grund­vall­ar­reglu setur stór­hættu­legt for­dæmi fyrir því að Alþingi geti snið­gengið úrslit kosn­inga og lýð­ræð­is­legan vilja meiri­hluta þjóð­ar­innar eftir geð­þótta. Þannig væri til dæmis hægt að efna til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald aðild­ar­við­ræðna við ESB en virða nið­ur­stöð­una að vettugi ef hún hent­aði ekki meiri­hlut­anum á Alþingi hverju sinni.

Alþingi hefur á 12 árum ekki auðn­ast að sigla stjórn­ar­skrár­mál­inu í höfn. Það hlýtur að telj­ast full­reynt. Til að rjúfa kyrr­stöð­una er lagt til að Alþingi kalli saman slembivalið stjórn­laga­þing almennra borg­ara. Þingið hefði það hlut­verk að leggja loka­hönd á til­lög­urnar sem sam­þykktar voru í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 2012 sem grund­völlur nýrrar stjórn­ar­skrár og fá þær Alþingi í hendur. Stjórn­laga­þingið vinni með lýð­ræð­is­legar grund­vall­ar­reglur að leið­ar­ljósi og virð­ingu við úrslit atkvæða­greiðsl­unnar, eins og nánar er líst í áskorun Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins frá 23. nóv­em­ber síð­ast­liðnum.

Stjórn­ar­skrár­fé­lagið áréttar kröf­una um að úrslit kosn­inga séu við­ur­kennd og að til­lögur að nýrri stjórn­ar­skrá sem yfir 2/3 hlutar kjós­enda (67%) sam­þykktu sem grund­völl nýrrar stjórn­ar­skrár í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu verði afgreiddar af heil­indum og virð­ingu við lýð­ræð­is­lega nið­ur­stöðu atkvæða­greiðsl­unnar.“

Hjörtur segir að lokum að það sé löngu komið tími til að þjóðin fái það sem hún kaus og að ný rík­is­stjórn hljóti að taka mið af því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn