Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Hinsegin dagar hefjast í dag

Hinsegin dagar hefj­ast í dag. Hefð hefur skap­ast und­an­farin ár að opna hátíð­ina með því að mála regn­boga í Reykja­vík. Árið 2015 var regn­bogi mál­aður á Skóla­vörðu­stíg og allt síðan hefur hátíðin opnað með regn­boga­málun. Í ár verður götu­mál­unin á Klapp­ar­stíg frá Lauga­vegi upp að Grett­is­götu.

Frá Hinsegin dögum.
Frá Hinsegin dögum. Mynd: © Hinsegin dagar í Reykjavík

Regn­bog­inn verður mál­aður á Klapp­ar­stíg klukkan tólf í dag. Götu­mál­unin er unnin í sam­starfi við Umhverfis- og skipu­lags­svið Reykja­vík­ur­borgar og er hluti af verk­efn­inu Torg í bið­stöðu í mið­borg Reykja­víkur. Sjálf­boða­liðar sem vilja taka þátt eru hvattir til að mæta með eigin pensla.

Sjálf opn­un­ar­há­tíðin fer fram í Háskóla­bíói klukkan 21.00 í kvöld. Hinsegin dagar fagna 20 ára afmæli í ár. Á vef Hinsegin daga segir að opn­un­ar­há­tíðin sé hið eina sanna „ætt­ar­mót“ hinsegin fólks. „Hér kemur fjöl­skyldan saman og á þessum merku tíma­mótum verður litið um öxl og þess minnst sem á daga okkar hefur drifið frá því að fyrsta hinsegin hátíðin var haldin á Ing­ólfs­torgi 26. júní árið 1999. Við skyggn­umst í fjöl­skyldu­albú­mið og að venju mun hópur fram­úr­skar­andi lista­fólks stíga á stokk og færa okkur söng, dans og gleði í hæsta gæða­flokki,“ segir í til­kynn­ingu Hinsegin daga.

Hátíð­ar­höld Hinsegin daga standa yfir í viku frá 8.- 17. ágúst. Tugir við­burða verða á næstu dögum. Meðal við­burða eru fræðslu­göngur og fyr­ir­lestrar, við­burðir tengdir listum og menn­ingu auk skemmt­ana­halds og tón­leika.

Gleði­gangan, hápunktur Hinsegin daga, fer fram laug­ar­dag­inn 17. ágúst klukkan 14.00. „Í henni sam­ein­ast les­b­íur, hommar, tví– og pankyn­hneigðir, trans fólk, inter­sex fólk og aðrir hinsegin ein­stak­lingar í einum hópi ásamt fjöl­skyldum sínum og vinum til að stað­festa til­veru sína, sýni­leika og gleði, ásamt því að minna á þau bar­áttu­mál sem skipta hvað mestu máli hverju sinni,“ segir í til­kynn­ingu Hinsegin daga um við­burð­inn.

Við­burð­ar­daga­tal Hinsegin daga má finna á vef hátíð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas