Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

120 mannshvörf á Íslandi síðan 1945

|||||||||Runólfur Þórhallsson
|||||||||Runólfur Þór­halls­son

Manns­hvörf valda bæði óhug og samkennd meðal íslensku þjóðarinnar, enda íbúar fáir, sambýlið þétt og allir þekkja alla eða tengjast. Okkur finnst óhugnanlegt að einstaklingur geti horfið eins og jörðin hafi gleypt hann án nokkurrar skýringar. Hin óleysta gáta um hvað gerðist, hvers vegna og hvernig veldur ættingjum og vinum hugarangri og umræðan um manns­hvörf og þá einstaklinga sem horfnir eru lifa lengi með fólki og leita ítrekað upp í umræðu og umfjöllun. Sumir lögreglu­menn telja fulla þörf á að stofna „cold case“ deild, sem meðal annars gæti skoðað eldri manns­hvörf.

Mannlíf fjallar um tíu manns­hvörf frá árinu 1945. Til viðbótar er fjallað um eitt mál þar sem Íslend­ingur sneri heim eftir að hafa verið talinn látinn í 12 ár.

„Lögreglu­embættin annast leit þegar einstaklingur hverfur, við komum ekki inn í manns­hvarfsmál fyrr en formlegri leit er hætt og einhverjir mánuðir eru liðnir frá því, “ segir Runólfur Þórhallsson, formaður kennsla­nefndar og aðstoðar­deildar­stjóri í greiningar­deild ríkis­lögreglu­stjóra. „Við tryggjum að viðkomandi lögreglu­embætti fylli út alþjóðleg skjöl, svokölluð AM- og PM skjöl, um hinn horfna. Það er okkar aðkoma að manns­hvörfum.“

Runólfur Þór­halls­son, for­maður kennsla­nefndar og aðstoð­ar­deild­ar­stjóri í grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra.

Á skjölin sem byggja á stöðlum Interpol eru skráðar ítarlegar upplýsingar um hinn horfna sem nýtast kennsla­nefnd við að bera kennsl á viðkomandi, þar á meðal almennar upplýsingar, eins og nafn og fæðingar­dagur, sérkenni á borð við ör og húðflúr auk upplýsinga um lækni og tannlækni viðkomandi. Runólfur segir skjölin þó ekki fyllt út í öllum leitar­málum. „Ef vísbendingar eru um að hvarfið hafi verið með vilja, getur verið að skjölin séu ekki útfyllt og viðkomandi fari því ekki á horfinna manna skrá.

Þegar líkams­leifar finnast fer síðan ákveðið ferli í gang og við aðstoðum lögreglu­embættin við þau mál. Tækni­deild lögreglunnar og lögreglu­embætti bera hitann og þungann af málunum. Við tryggjum að réttar­meina­rannsókn fari fram og hvaða kennsl eru möguleg: er hægt að fara í tannlækna­stað­festingu, þarf að fara í DNA eða er mögulegt að taka fingraför, það eru þessi þrjú helstu kennsl,“ segir Runólfur. „Það er allur gangur á því hversu langan tíma tekur að bera kennsl á líkams­leifar. Það er megin­reglan að hægt sé að ná DNA-sýni og tíminn að fá það greint tekur ekki langan tíma, getur hlaupið á vikum, mesta lagi mánuðum. Tækni­deildin hér heldur utan um DNA-sýni, en við fáum stað­festingu og leitum til Svíþjóðar með þau. Það hefur hins vegar komið upp sú umræða að við getum farið að sinna þessari greiningu hér á landi.“

Manns­hvörf á horfinna manna skrá

Hér fyrir neðan má sjá tvö af þeim tíu mann­hvarfsmálum sem Mannlíf fjallar um, þessir einstaklingar eru á horfinna manna skrá.

Elísabet Bahr Ing­ólfs­son
Matthias Hinz og Thomas Grundt

Nánar er fjallað um manns­hvörf í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim