Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Heimilar ræktun iðnaðarhamps – Tryggt að ekki verði ræktaðar plöntur sem valda vímu

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur veitt Lyfja­stofnun und­an­þágu­heim­ild sem gerir inn­flutn­ing, með­ferð og vörslu fræja til rækt­unar iðn­að­ar­hamps mögu­lega. Þetta kemur fram á vef heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins. Þar segir að Svandís hafi veitt heim­ild­ina með breyt­ingu á reglu­gerð nr. 233/2001 með stoð í 2. gr. laga um ávana- og fíkni­efni.

Heim­ildin er háð skil­yrðum og tak­mörk­unum svo tryggt sé að ekki verði fluttar inn eða rækt­aðar plöntur sem inni­halda vímu­efnið THC í nýt­an­legu magni, eða að hámarki 0,2%.

Í grein á vef ráðu­neyt­is­ins segir að vax­andi áhugi hafi verið fyrir ræktun iðn­að­ar­hamps hér á landi til að nota í ýmsum iðn­aði, t.d. við fram­leiðslu umhverf­is­væns bygg­ing­ar­efnis sem gæti komið í stað plasts.

Hingað til hefur óvissa verið uppi um hvort ræktun iðn­að­ar­hamps stand­ist íslensk lög.

Ein tegund kannabis

„Iðn­að­ar­hampur er ein teg­und kanna­bis en planta með því heiti er ýmsum kunn sem vímu­gjafi. Vímu­vald­ur­inn í kanna­bis er virka inni­halds­efnið THC sem auk þess að valda vímu er ávana­bind­andi. Iðn­að­ar­hampur, þ.e. þau yrki kanna­bis­plönt­unar sem ræktuð eru til iðn­að­ar­fram­leiðslu eru aftur á móti frá­brugðin hefð­bundnum yrkjum plönt­unnar þar sem þau inni­halda lítið sem ekk­ert af THC,“ segir á vef ráðu­neyt­is­ins.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra leggur áherslu á að reglu­gerð­ar­breyt­ingin sé tíma­bundin ráð­stöfun: „Ávana- og fíkni­efna­lög­gjöfin hefur skýr mark­mið og til­gang sem fellur aug­ljós­lega að mál­efna­sviðum heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins. Það gerir sú ræktun sem hér um ræðir hins vegar ekki, að því gefnu að hún stang­ist ekki á við inn­tak og mark­mið þess­ara sömu laga“ er haft eftir ráð­herra á vef ráðu­neyt­is­ins. Hún segir því nauð­syn­legt að skipa starfs­hóp til að koma þessum málum í far­veg, ekki síst til að skýra laga­grund­völl­inn og ábyrgð þeirra stofn­ana sem þurfa að koma að fram­kvæmd­inni þegar kemur að leyf­is­veit­ingum og eft­ir­liti með ræktun iðn­að­ar­hamps.

Reglu­gerðin hefur verið send Stjórn­ar­tíð­indum og tekur gildi við birt­ingu, eigi síðar en 21. apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas