Karlmaður á Akureyri hefur verið ákærður fyrir fíkniefnalagabrot.
Maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, hafði 0,56 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni í vörslum sínum þegar lögregla hafði afskipti af honum þann 4. febrúar 2025 á dvalarstað hans.
Halldór Tumi Ólason aðstoðarsaksóknari og lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra eru ákærendur í málinu og þarf maðurinn að mæta fyrir dómstóla seinna í febrúar en málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Norðurlands.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir