Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Hatursorðræða gegn hinsegin fólki eykst á netinu

Ein af tíu athuga­semdum um hinsegin fólk á net­inu inni­heldur hat­urs­full ummæli

Ingvild Endestad
Ingvild Endestad Mynd: Róbert Reynisson / Reykjavíkurborg

Ný rann­sókn Nordic Safe Cities fyrir Reykja­vík­ur­borg sýnir að nei­kvæð umræða um hinsegin sam­fé­lagið fer vax­andi á net­inu. Ein af hverjum tíu athuga­semdum um hinsegin mál­efni inni­heldur hat­urs­orð­ræðu og lýsa nið­ur­stöð­urnar auk­inni skautun og harka­legri orð­ræðu en áður.

Nið­ur­stöð­urnar voru kynntar á mál­þingi í Safna­hús­inu í dag. Rann­sóknin, sem styrkt er af Norrænu ráð­herra­nefnd­inni, byggir á grein­ingu 35 þús­und athuga­semda á Facebook frá árunum 2022 til 2025.

Sér­stak­lega er bent á að frá­sagnir um rétt­indi trans fólks, fræðslu og kyn­vit­und séu orðnar meg­in­við­fangs­efni í umræð­unni. Þar sé hinsegin fólki rang­lega lýst sem ógn, meðal ann­ars við börn og konur, líkt og einnig sé raunin ann­ars staðar á Norð­ur­löndum.

Að mati rann­sak­enda hefur þessi orð­ræða bein áhrif á líðan og öryggi hinsegin fólks utan netheima. Í við­tölum við sam­tök hinsegin fólks í Reykja­vík kemur fram að hat­urs­orð­ræða á net­inu teng­ist auk­inni áreitni, skemmd­ar­verkum og ótta í sam­fé­lag­inu.

„Umræðan á net­inu er orðin hávær­ari og harka­legri,“ segir Ingvild Endestad hjá Nordic Safe Cities en hún kynnti nið­ur­stöður skýrsl­unnar. „Frá­sagnir tengdar menn­ing­ar­stríði um rétt­indi trans fólks, fræðslu og kyn­vit­und ber­ast auð­veld­lega milli svæða og móta við­horf fólks. Það sem ger­ist á net­inu er ekki bara á net­inu, heldur hefur það áhrif á hversu öruggt ungt hinsegin fólk upp­lifir sig í dag­legu lífi.“ Hún bætir við að sterk lagaum­gjörð dugi ekki ein og sér, sam­fé­lags­legur stuðn­ingur og virð­ing skipti lyk­il­máli.

„Þótt Reykja­vík­ur­borg sé þekkt fyrir jafn­rétti, þá geta staf­ræn rými valdið fólki óör­yggi,“ segir Sabine Leskopf, for­maður mann­réttinda­ráðs og starfs­hóps um verk­efnið Saman gegn ofbeld. „Þessi rann­sókn gefur okkur dýr­mæta inn­sýn og hjálpar okkur sem borg að bregð­ast við þessu óör­yggi og vernda þar með hinsegin fólk. Við viljum að Reykja­vík­ur­borg sé örugg borg fyrir öll.“

Hún segir nið­ur­stöð­urnar mik­il­vægar fyrir áfram­hald­andi aðgerðir gegn hat­urs­orð­ræðu og ofbeldi.

Stefnt er að því að nýta nið­ur­stöð­urnar í þróun aðgerða í sam­starfi við fjöl­breytta hags­muna­að­ila. Jafn­framt er mark­mið verk­efn­is­ins að hvetja aðrar nor­rænar borgir til að fylgja for­dæmi Reykja­víkur.

Sjá má alla Safer Queer Cities skýrsl­una hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas