Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Aldrei fleiru fólki vísað frá landinu: „Brýnt er að koma þessu í lag. Lög bjóða ekki annað“

Lögreglan á Suðurnesjum.
Lög­reglan á Suð­ur­nesjum. Mynd: Facebook

Aldrei hefur fleiri far­þegum verið vísað frá Íslandi á Kefla­vík­ur­flug­velli við komu þeirra til lands­ins.

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum sendi fjöl­miðlum í dag frétta­til­kynn­ingu þar sem hún tekur saman ýmsar tölu­legar upp­lýs­ingar um starf­semi lög­reglunna á Suð­ur­nesjum.

Fram kemur í bréf­inu að aldrei hafi fleiri far­þegum verið vísað frá land­inu á Kefla­vík­ur­flug­velli við komu þeirra til lands­ins. Flestir þeirra eru þriðja ríkis borg­arar sem koma hingað með flugi frá öðru Schengen-ríki. Nú eru 258 frá­vís­un­ar­mál skráð það sem af er ári en það eru tölur sem ekki hafa sést áður. Segir í bréf­inu að breytt verk­lag og skipu­lag lög­gæslu á flug­vell­inum hafi eflaust breytt hér miklu ásamt góðu sam­starfi við toll­gæslu. Ástæður frá­vís­ana geta verið margar en þar fer mest fyrir frá­vís­unum ein­stak­linga frá land­inu vegna tengsla þeirra við brota­starf­semi.

Þá segir í til­kynn­ing­unni að mik­il­vægt sé að „starf­semi lög­reglu og toll­gæslu á Kefla­vík­ur­flug­velli sé öflug og vel þjálf­aður mann­skapur sé til staðar auk nauð­syn­legs tækja­bún­aðar og við­un­andi starfs­að­stöðu.“ Samstarf Evr­ópu­ríkja á sviði lög­reglu­sam­starfs og landamæra­eft­ir­lits sem bygg­ist á Schengen samn­ingnum er að sögn bréfs­ins „gríð­ar­lega umfangs­mikið og krefj­andi ekki síst fyrir Ísland svo fjarri meg­in­landi Evrópu.“

Íbúar á Schengen svæð­inu eru yfir 400 millj­ónir en þeim er heim­ilt að fara yfir innri landa­mæri Schengen-svæð­is­ins án þess að landamæra­eft­ir­lit fara fram, án til­lits til rík­is­fangs. Í bréf­inu segir enn­fremur: „Samkvæmt lögum um landa­mæri er fyr­ir­tækjum sem ann­ast flutn­ing far­þega til og frá land­inu skylt að afhenda lög­reglu upp­lýs­ingar um far­þega og áhöfn. Þá er lög­reglu heim­ilt að safna og skipt­ast á upp­lýs­ingum um far­þega og áhöfn við toll­yf­ir­völd í þágu eft­ir­lits  og grein­ing­ar­starfs eða vegna rann­sókna á ætl­uðum brotum.“ Segir í til­kynn­ing­unni að flest flug­fé­lög veiti umbeðnar upp­lýs­ingar, þar á meðal íslensku flug­fé­lögin. „Þó eru flug­fé­lög sem fljúga hingað reglu­lega sem veita ekki þessar upp­lýs­ingar og kom­ast upp með það.“ Lög­reglan tekur fram að tolla­yf­ir­völd geti „lagt stjórn­valds­sektir á fyr­ir­tæki sem brjóta gegn skyldu til að veita umbeðnar upp­lýs­ingar,“ en að lög­reglu sé ekki kunn­ugt um að það hafi verið gert. „Brýnt er að koma þessu í lag,“ skrifar hún í lok bréfs­ins og heldur áfram: „Lög bjóða ekki annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum