Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Róbert réðst á 13 ára gamlan dreng

Vitni sagði að Róbert hefði hótað dregnum að „láta hann hverfa“

Árásin átti sér stað í Kópavogi
Árásin átti sér stað í Kópavogi Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Kópavogsbær

Róbert Bjarg­ar­son hefur verið dæmdur í 60 daga skil­orðs­bundið fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­ness fyrir lík­ams­árás, hót­anir og brot gegn barna­vernd­ar­lögum vegna atviks sem átti sér stað við Hamra­borg í Kópavogi í apríl 2023.

Samkvæmt dóm­inum réðst Róbert að tæp­lega 14 ára dreng eftir að hafa farið á vett­vang til að ræða við hann um sam­skipti hans við son sinn. Fyrir dómi við­ur­kenndi ákærði að hafa misst stjórn á skapi sínu, gripið í úlpu drengs­ins og ýtt honum niður á bekk. Dómurinn taldi hins vegar sannað að hann hefði gengið lengra, meðal ann­ars sveigt bak drengs­ins aftur yfir bekk­inn, tekið hann háls­taki og haft uppi alvar­legar hót­anir.

Vitni lýstu Róberti sem mjög reiðum og stjórn­lausum. Starfs­maður barna­verndar, sem varð vitni að hluta atviks­ins, sagði hann hafa öskrað á dreng­inn og þrýst honum aftur yfir bekk. Annað vitni sagði að Róbert hefði hótað að „láta hann hverfa“.

Dreng­ur­inn leit­aði á bráða­mót­töku sama dag og greindust hjá honum yfir­borðsá­verkar á hálsi og baki. Þá lýsti hann miklum ótta í kjöl­far árás­ar­innar og sagði hana hafa haft veru­leg áhrif á líðan sína.

Dómurinn taldi hátt­semi Róbert til þess fallna að vekja ótta um líf, heil­brigði og vel­ferð barns­ins. Við ákvörðun refs­ingar var meðal ann­ars litið til þess að Róbert hafði ekki áður gerst sekur um refsi­verðan verknað og að nokkur dráttur hefði orðið á mál­inu.

Hann var jafn­framt dæmdur til að greiða drengnum 400 þús­und krónur í miska­bætur auk rúm­lega hálfrar millj­ónar króna í máls­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas