Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Sýningin Jólin hans Hallgríms slær í gegn í Hallgrímskirkju: „Börnunum fannst svo gaman“

Jóla­sýn­ingin Jólin hans Hall­gríms hafa slegið í gegn í Hall­gríms­kirkju í des­em­ber.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Hall­gríms­kirkju segir að sýn­ingin Jólin hans Hall­gríms hafi slegið ræki­lega í gegn í des­em­ber en nú þegar hafa um 600 börn á aldr­inum þriggja til tólf ára séð sýn­ing­una. Sýningin byggir á sam­nefndri bók Stein­unnar Jóhann­es­dóttur en þetta er í níunda skiptið sem hún er sett upp. Fjallar bókin um und­ir­bún­ing jól­anna hjá Hall­grími Pét­urs­syni er hann var ungur drengur.

Frétta­til­kynn­ing­una má lesa hér fyrir neðan:

„Börnunum fannst svo gaman og þau fylgd­ust svo náið með að það mátti heyra saum­nál detta“, var haft eftir kenn­ara sem fylgdi börnum á sýn­ing­una „Jólin hans Hall­gríms“ í Hall­gríms­kirkju.

Sýningin er byggð á sam­nefndri bók Stein­unnar Jóhann­es­dóttur og er þetta í níunda sinn sem sagan er sett upp. Bókin segir frá und­ir­bún­ingi jól­anna hjá Hall­grími Pét­urs­syni sem ungum dreng og fjöl­skyldu hans. 

Í þess­ari glæ­nýju svið­setn­ingu Pálma Freys Hauks­sonar og Níelsar Thibaud Girerd fá börnin að heim­sækja gamla bað­stofu á sveita­bænum Gröf á Höfða­strönd, sem sett hefur verið upp í Norð­ur­sal kirkj­unnar, og kynn­ast því hvernig jólin voru haldin hátíð­leg fyrir 400 árum. 

Leik­ar­arnir bregða sér í líki per­sóna bók­ar­innar og sjá má þar á meðal Hallgrím Pét­urs­son sem sjö ára prakk­ara. 

Þótt margt hafi breyst á fjórum öldum er þó ýmis­legt kunn­ug­legt við und­ir­bún­ing jól­anna og þá helst hvernig ljós kviknar í hjörtum mann­anna þótt skamm­deg­is­myrkur grúfi yfir. 

„Jólin hans Hall­gríms“ verður sýnd dag­ana 1.-21. des­em­ber og hafa nú þegar sex­hund­ruð börn á aldr­inum 3-12 ára séð sýn­ing­una. Börn sem koma á sýn­ing­una fá einnig leið­sögn um kirkj­una og syngja með Birni Steinari Sól­bergs­syni sem spilar skemmti­leg jóla­lög og segir frá org­eli Hall­gríms­kirkju, sem er stærsta hljóð­færi lands­ins. Sýningin er hluti af barna- og menn­ing­ar­starfi Hall­gríms­kirkju og er skóla­hópum heim­sóknin þeim að kostn­að­ar­lausu. Hægt er að bóka heim­sókn fyrir skóla­hópa með því að senda á [email protected].

“Mér fannst ótrú­lega gaman, en heitir þú í alvör­unni Hall­grímur”?

– Nemandi úr 3. bekk, Mela­skóla

Með­fylgj­andi eru nokkrar skemmti­legar myndir frá sýn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027