Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Segir alhæfingar Hannesar um mótmælin í Frakklandi „bara bull til að blekkja“

Hjálmtýr Heiðdal sakar Hannes Hólm­stein um að blekkja fólk um mót­mæli í Frakk­landi

Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son Hjálmtýr hjólar í Hannes Hólm­stein í nýrri færslu Mynd: Mannlíf

Hjálmtýr Heiðdal, for­maður félags­ins Ísland-Palest­ína, gagn­rýnir Hannes Hólm­stein Giss­ur­ar­son harð­lega fyrir ummæli hans um mót­mæli og óeirðir í Frakk­landi. Í Facebook-færslu sem hann nefnir „Alhæf­ingar Hannesar Hólm­steins“ segir Hjálmtýr pró­fess­or­inn reyna að telja fólki trú um að öfga­vinstri­s­innar og öfgamúslimar standi að baki mót­mæl­unum.

„Hannes Hólm­steinn fer mik­inn á sam­fé­lags­miðlum og reynir að telja fólki trú um að öfga­vinstri­s­innar og ögfgamúslimar standi að baki mót­mæl­unum í Frakk­landi og óeirð­unum sem fylgja í kjöl­farið,“ skrifar Hjálmtýr.

Hann segir mót­mæli ekki aðeins fara fram í Frakk­landi heldur einnig í Portúgal, á Ítalíu, Spáni og í Albaníu.

„Það er fyrst og fremst verið að mót­mæla nið­ur­skurði í mennta­málum og almanna­þjón­ustu auk hækk­andi vöru­verðs sem ný-frjáls­hyggjan ber í skauti sér,“ skrifar Hjálmtýr og bætir við að það sé einmitt sú stefna sem Hannes Hólm­steinn „beri fyrir brjósti“.

Hann er harð­orður í garð Hannesar og segir alhæf­ingar hans um mót­mæl­endur vera „bara bull til að blekkja“.

Segir engar vísbendingar um að fyrirtæki gyðinga hafi verið sérstök skotmörk

Hjálmtýr gagn­rýnir sér­stak­lega full­yrð­ingar Hannesar um að fyr­ir­tæki í eigu gyð­inga hafi verið eyðilögð í óeirð­unum en versl­unum í eigu múslima hlíft.

„Hannes full­yrðir ítrekað að fyr­ir­tæki í eigu gyð­inga hafi verið eyðilögð en versl­unum í eigu múslima hafi verið hlíft,“ skrifar hann.

Í færsl­unni vísar Hjálmtýr til upp­lýs­inga sem hann segir koma frá lög­reglu og stofn­unum gyð­inga­sam­fé­lags­ins í París. Hann segir að hvorki lög­reglan né stofn­anir gyð­inga hafi fundið vís­bend­ingar um að sam­kundu­hús eða fyr­ir­tæki í eigu gyð­inga hafi verið sér­stak­lega valin sem skot­mörk vegna gyð­inga­hat­urs.

Hann vísar meðal ann­ars til örygg­is­þjón­ustu gyð­inga­sam­fé­lags­ins í Frakk­landi, SPCJ (Service de Protection de la Communauté Juive), og lög­gæslu­yf­ir­valda.

Samkvæmt Hjálmtý hafi fyrstu full­yrð­ingar um að óeirða­seggir hefðu farið eftir listum yfir heim­il­is­föng í eigu gyð­inga eða vís­vit­andi hlíft fyr­ir­tækjum í eigu múslima birst á sam­fé­lags­miðlum og í óstað­festum fréttum.

„SPCJ og yfir­völd á staðnum komust að þeirri nið­ur­stöðu að þessar full­yrð­ingar ættu sér enga stoð í raun­veru­leik­anum,“ skrifar Hjálmtýr.

Vísar til 800 þúsund mótmælenda og 2.000 verslana

Hjálmtýr bendir á umfang mót­mæl­anna og ringul­reið­ina sem fylgir þeim. Í færsl­unni nefnir hann um 800.000 mót­mæl­endur og að skemmd­ar­verk hafi verið unnin á um 2.000 versl­unum víðs vegar um Frakk­land.

Hann telur því ekki rétt­læt­an­legt að full­yrða að fyr­ir­tæki hafi verið valin sem skot­mörk vegna trú­ar­bragða eig­enda þeirra án þess að sann­anir liggi fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum