Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Kristján Þór Júlíusson var bæjarstjóri á Ísafirði þegar Samherji keypti Guðbjörgina

Kristján Þór Júlíusson var bæði stjórnar­formaður Samherja og bæjar­stjóri Ísafjarðar­bæjar þegar Samherji keypti útgerðar­félagið Hrönn hf. inn í fyrir­tækið, ásamt togaranum Guðbjörgu ÍS og þeim kvóta sem henni fylgdi.

Eins og kom fram í Baksýnis­spegli gærkvöldsins áttu atburðir loka­þáttar Verbúðarinnar sér hliðstæðu í raun­veru­leikanum.

Höskuldar­viðvörun! Hér á koma fram ákveðin atriði sem áttu sér stað í lokaþætti Verbúðarinnar.

HG Sæfang og Þorbjörgin áttu sér fyrir­myndir í útgerðar­félaginu Hrönn hf. og togaranum Guðbjörgu ÍS á Ísafirði. Gunnar Már, sá sem mætti á svæðið og keypti upp allt heila klabbið, á sér fyrirmynd í Þorsteini Má Baldvins­syni en Samherji með Þorstein Má fremstan í flokki keypti Hrönn hf. og Guðbjörgina inn í Samherja árið 1997.

Svikin loforð

Þorsteinn Már, forstjóri og einn aðal­eigenda Samherja, gaf það út í viðtali við Ríkis­útvarpið að Ísfirðingar þyrftu engar áhyggjur að hafa af viðskiptunum. Breytingin myndi ekki draga úr umsvifum í bænum. Hann lofaði líka eigendum Hrannar hf., sem og íbúum Ísafjarðar, að Guðbjörgin yrði áfram gul, að hún yrði áfram ÍS og að hún yrði áfram gerð út frá Ísafirði.

Þessi þrjú loforð voru að endingu öll svikin en Þorsteinn Már gerði lítið úr því á sínum tíma. Hann sagði yfir­lýsinguna sannarlega hafa verið mistök en að ekki hafi verið um „bindandi loforð“ að ræða. „Aðstæður í sjávar­útvegi eru það breytilegar að það verður að viðurkennast. Sjávar­útvegurinn er eins og sjórinn, síbreytilegur,“ sagði hann í viðtali við Morgun­blaðið.

Kristján Þór liðkaði fyrir trausti bæjarbúa og fyrri eigenda

Yfir­lýsing Samherja var á sínum tíma studd af bæjar­stjóra Ísafjarðar. Það var Kristján Þór Júlíusson, sem seinna átti eftir að verða sjávar­útvegs­ráðherra og komast duglega í umræðuna eftir símtal sem hann átti við Þorstein Má, eftir að upp komst um viðskipta­hætti Samherja í Namibíu.

Kristján Þór Júlíusson og staða hans, bæði sem stjórnar­formaður Samherja á þessum tíma og bæjar­stjóri Ísafjarðar­bæjar, átti ríkan þátt í því að Ísfirðingar, sem og fyrri eigendur Hrannar hf., treystu þessum nýju eigendum og yfir­lýsingum þeirra. Fyrir lok ársins 1997 var Kristján Þór hættur sem bæjar­stjóri og farinn norður. Í byrjun árs 1998 bauð hann sig fram sem bæjarstjóra­efni Sjálfstæðis­flokksins fyrir bæjar­stjórnar­kosningarnar á Akureyri um vorið. Hann vann þær kosningar og sat sem bæjar­stjóri frá árinu 1998 til 2006.

Í ljós hefur komið að yfir­lýsing Samherja­manna gagnvart Ísfirðingum og fyrri eigendum Hrannar hf. voru meira en bara munnleg. Til er skriflegt plagg með yfir­lýsingunni en þar stendur:

„Frétta­tilkynning. Hluthafar Samherja h.f. Akureyri og Hrannar h.h. Ísafirði hafa undir­ritað samkomulag um að sameina þessi sjávar­útvegs­fyrirtæki. Samkomulag er um að útgerð Guðbjargar ÍS verði óbreytt frá því sem verið hefur á Ísafirði.“

Yfir­lýsingin er undir­rituð af Þorsteini Má Baldvins­syni fyrir hönd Samherja og Ásgeiri Guðbjarts­syni fyrir hönd Hrannar hf. Hún er dagsett þann 7. janúar árið 1997.

Afrit af skrif­legu yfir­lýs­ing­unni.

Guðbjörgin átti aldrei eftir að landa aftur á Ísafirði. Fljótlega hafði Samherji flutt kvóta togarans yfir á önnur skip í sinni eigu og tveimur árum síðar hafði skipið verið selt til Þýska­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu