Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Haraldur segir sveitarfélög brjóta lög nánast daglega: „Skussaverðlaunin fær Garðabær“

Haraldur Freyr Gíslason, forðmaður Félags leikskólakennara. Samsett mynd.
Haraldur Freyr Gíslason, forð­maður Félags leik­skóla­kenn­ara. Samsett mynd.

Formaður Félags leik­skóla­kenn­ara skammar sveit­ar­fé­lögin fyrir lög­brot.

Í nýjum pistili sem Haraldur Gíslason, for­maður Félags leik­skóla­kenn­ara, sagði í honum að sveit­ar­fé­lög lands­ins séu að brjóta lög nán­ast á hverjum degi og það sé ekk­ert leynd­ar­mál. Samkvæmt Haraldi þá er það bundið í lög að ⅔ af starfs­fólki leik­skóla eigi að hafa menntun tengda upp­eldi en stað­reyndin sé sú að sú tala sé lægri en ⅓. 

„Það er ljóst að leik­skólar verða ekki starf­ræktir án kenn­ara. Í til­felli leik­skól­ans er það bundið í lög að að lág­marki 2/3 hlutar þeirra sem sinna upp­eldi og menntun í leik­skólum eigi að hafa leyf­is­bréf. Það þýðir að það er lög­bundið að kenn­arar í leik­skólum eigi að hafa menntun. Í dag er það samt þannig að ein­göngu tæp­lega 1/3 hluti þeirra sem starfa í leik­skólum hafa til þess til­skilda menntun eins og lögin kveða á um. Það eru ekki nýjar fréttir.

Þessi laga­lega krafa um 2/3 er ekki ný. Hún kom fyrst inn í lögin 2008. Fyrir þann tíma voru lögin þannig að allir þeir sem sinntu upp­eldi og menntun í leik­skólum skyldu hafa til þess menntun. Það má því alveg segja að árið 2008 hafi verið gerð minni krafa til mennt­unar í leik­skólum en á öðrum skóla­stigum þar sem þetta 2/3 lág­mark er ekki til staðar,“ og sagði Haraldur að sveit­ar­lögin væru ekki að gera nóg til að fjölga kenn­urum og upp­fylla lögin.

„Við þurfum að gera betur hvað varðar starfs­að­stæður barna og kenn­ara í leik­skólum. Það er stað­reynd að víða er rými í leik­skólum fyrir börn og starfs­fólk ábóta­vant. Bæta þarf inn í reglu­gerð um leik­skóla lág­mark­s­við­miði um stærð leik­rýmis sem til­heyrir leik­skóla­deild. Á því hafa sveit­ar­fé­lögin ekki áhuga þar sem það setur á þau auknar kröfur. Á því hefur lög­gjaf­inn ekki heldur áhuga þar sem að sveit­ar­fé­lögin eru því mót­fallin. Er það góð hug­mynd?

Við þurfum sums staðar að gera betur í fram­kvæmd betri vinnu­tíma í leik­skólum, þó sann­ar­lega mörg sveit­ar­fé­lög hafi tekið málið föstum tökum, og því ber að fagna og hrósa,“ sagði for­maður í pistl­inum sem birt­ist á Vísi og tók fram að samið hafi verið um fram­kvæmd á betri vinnu­tíma í leik­skólum en skortur á fag­mennsku í sveit­ar­fé­lögum sé til staðar varð­andi úrlausn á því máli.

„Skussa­verð­launin fær Garðabær, sem sam­kvæmt fylgi­skjali um betri vinnu­tíma í leik­skólum, átti að skila inn tíma­settri áætlun um hvernig mark­miðum fylgi­skjals­ins yrði náð í síð­asta lagi 31. mars síð­ast­lið­inn. Enn bólar ekk­ert áætl­un­inni þrátt fyrir ítrek­anir.

Á meðan tekur Garðabær áhætt­una á því að „blæða“ kenn­urum til ann­arra sveit­ar­fé­laga sem er erfitt að hafa samúð með þegar að bær­inn stendur sig jafn illa og raun ber vitni hvað þetta verk­efni varðar. Er það góð hug­mynd?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar