Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Flóttinn mikli af RÚV heldur áfram: „Stutt í heykvíslar og ýmiss konar árásir og áreitni“

Líkt og Mannlíf greindi frá í gær þá hefur Einar Þorsteinsson, stjórn­andi Kast­ljóssins á RÚV, látið af störfum og að framundan væru ný verkefni á nýjum vinnustað hjá kappanum.

Einar hefur þótt harður í horn að taka og alls ófeiminn að spyrja erfiðra spurninga og ekki verður auðvelt að fylla hans skarð.

Frétta­stofa RÚV hefur orðið fyrir ansi miklum skakka­föllum á ekki svo löngum tíma; frétta­stjórinn Rakel Þorbergs­dóttir kvaddi landsmenn um áramót eftir langt og farsælt starf á RÚV.

Rakel sagði meðal annars við það tækifæri að „það er margt jákvætt við starfið en líka skugga­hliðar. Það er óvægni í umræðunni og stutt í heykvíslar, en líka ýmiss konar árásir og áreitni gagnvart blaða- og frétta­mönnum sem hefur ekkert með málefna­lega rökstudda gagnrýna að gera.“

Þá hvarf Aðalsteinn Kjartansson úr Kveik af vettvangi nýlega og en hélt áfram í sama geira; skipti yfir á Stundina.

Og eins og það væri ekki nóg, þá hvarf Sunna Valgerðar­dóttir af braut á frétta­stofunni, eins og Haukur Harðarson íþrótta­fréttamaður. Líka Orri Freyr Rúnarsson.

Nokkru áður hafði Milla Ósk Magnúsdóttir hætt á frétta­stofu RÚV; er nú aðstoðar­maður Willums Þórs Þórssonar heilbrigðis­ráðherra.

Þeir sem stjörnuðu hinum vinsæla þætti KrakkaRÚV, eru einnig hættir hjá stofnuninni rótgrónu.

Fanney Birna Jóns­dóttir hætti sem stjórn­andi í umræðu­þættinum Silfrinu á RÚV.

Þetta eru mikil afföll á stuttum tíma, og hvað veldur er ekki auðvelt að skýra. Orðrómur hefur verið uppi um að launa­deilur hafi átt sér stað, sem og að frétta­fólki stofnunarinnar hafi fundist skorta á stuðning við sig í erfiðum málum; hins vegar eru gjarnan miklar hræringar í fjölmiðla­heiminum, en þessi fólks­flótti af frétta­stofu RÚV er hins vegar ansi mikill á afar stuttum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim