Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Veit ekkert um afdrif föður síns

Zainab Safari, tólf ára bróðir hennar og móðir þeirra þrá að setj­ast að á Íslandi eftir líf á flótta. Von þeirra um það fer hins vegar ört þverr­andi, eftir að að íslensk stjórn­völd hafa hafnað því að taka mál fjöl­skyld­unnar til efn­is­legrar með­ferðar og þar með að skoða mögu­leik­ann á því að þau eigi þess kost að setj­ast að hér á landi. Nú eru líkur á að fjöl­skyldan endi á götum Grikk­lands.

|
|
Zainab Safari komst til Íslands eftir miklar hrakn­ingar.

Zainab er afgönsk að upp­runa en hefur þó aldrei búið í sínu stríðs­hrjáða heima­landi, heldur er hún fædd á flótta í Íran árið 2004. Hún bendir reyndar á að eftir þar­lendu tíma­tali sé hún fædd árið 1384. „Þegar ég fædd­ist í Íran voru for­eldrar mínir á flótta undan stríð­inu í Afganistan og þar er enn stríð. Þannig að það er fátt sem bendir til þess að það komi til með að breyt­ast. Við vorum í tólf ár í Íran og Amir bróðir minn er líka fæddur þar en hann er tveimur árum yngri en ég. Lífið í Íran var skelfi­legt og þess vegna ákváðu for­eldrar mínir að leggja á flótta til Evrópu í von um betra líf og ein­hverja fram­tíð, sér­stak­lega fyrir mig og bróður minn.“

Ferðin frá Íran til Evrópu var gríð­ar­lega erfið enda fóru þau fyrst fót­gang­andi frá Norður-Íran eftir erf­iðum vegum og fjal­lendi til Tyrk­lands en þaðan tókst þeim svo að kom­ast með báti til Grikk­lands. Þegar þangað var loks­ins komið tók þó ekk­ert annað við en von­brigði og skelfi­legar aðstæður. Zainab segir að fyrst eftir að þau komu til Grikk­lands hafi þau verið sett á hót­el­her­bergi en það hafi aðeins varað í nokkra mán­uði á meðan verið var að setja upp flótta­manna­búðir þangað sem þau voru svo flutt í fram­hald­inu. En lífið í flótta­manna­búð­unum reynd­ist vera í alla staði skelfi­legt. „Þetta var ekki gott líf. Það var mikið um drykkju í flótta­manna­búð­unum og var stöðugt verið að slást og berj­ast um alla hluti. Það var ömur­legt.“

„Þetta var ekki gott líf. Það var mikið um drykkju í flótta­manna­búð­unum og var stöðugt verið að slást og berj­ast um alla hluti. Það var ömur­legt.“

Zainab, móðir hennar og bróðir komu til Íslands síð­ast­liðið haust en faðir hennar er týndur á götum Grikk­lands eftir að hafa glímt við alvar­legt þung­lyndi um skeið en í raun er ekk­ert vitað um afdrif hans. Þrátt fyrir að sam­kvæmt lögum beri ríkjum að sinna þeim flótta­mönnum sem hafa fengið alþjóð­lega vernd til jafns við eigin þegna er það þó alls ekki raunin í Grikk­landi. Herfi­legt efna­hags­á­stand í land­inu á síð­ustu árum á sinn þátt í því og við slíkar aðstæður blossa oft upp kyn­þátta­for­dómar, skipu­lögð glæp­a­starf­semi með fíkni­efna­sölu og vændi á götum borg­anna og þannig mætti áfram telja. Stað­reyndin er að þetta eru að öllum lík­indum þær götur og þær aðstæður sem bíða Zainab og fjöl­skyldu hennar verði þau send aftur til Grikk­lands.

Aðspurð um hvað henni finn­ist um Ísland og það sem á daga hennar hefur drifið síðan hún kom hingað í sept­em­ber segir hún að hér hafi henni strax liðið vel. „Hér er friður. Friður eins og ég hef aldrei upp­lifað áður. Mér finnst líka vera fal­legt hérna og að fólkið sé ham­ingju­samt vegna þess að það brosir og er vina­legt.“

Zainab segir að stuðn­ingur skóla­systk­ina hennar, sem hrintu af stað und­ir­skrifta­söfnun svo að fjöl­skyld­unni yrði ekki vísað úr landi, hafi glatt hana mikið. „Þetta gerir mig ham­ingju­sama. Það er gott að finna stuðn­ing og að allt þetta fólk reynir að hjálpa til. Núna vona ég bara að ég og mamma og bróðir minn fáum að vera hérna áfram og eign­ast fram­tíð. Það er draum­ur­inn.“

Zainab segir að óneit­an­lega sé hún hrædd við það sem ger­ist næst. „Ef við verðum send aftur til Grikk­lands eigum við okkur ekk­ert líf. Þar eigum við enga fram­tíð. Það er eflaust fínt að koma til Grikk­lands sem ferða­maður og skoða landið, eiga pen­inga og vera að ferð­ast, en það er ekki það sem bíður okkar. Það Grikk­land sem bíður okkar er allt annað og þar er ekki gott að búa.“

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas