Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Þórdís segir stærstu ógn kynfræðslu vera fáfræði: „Leyfum ekki fámennum hópi að dreifa ósannindum“

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Mynd / Aldís Pálsdóttir
Þórdís Elva Þor­valds­dóttir Mynd / Aldís Páls­dóttir

Þórdís Elva Þor­valds­dóttir, bar­áttu­kona og rit­höf­undur, hvetur fólk til sam­stöðu gegn fáfræði.

Eins og Mannlíf fjall­aði um í gær hafa sam­tök og fólk á inter­net­inu verið að taka myndir úr kyn­fræðslu­bókum úr sam­hengi, ljúga til um kennslu­efni og saka kenn­ara og sam­tök um barn­a­níð án ástæðu. Markmið þess­ara fals­frétta virð­ist vera að grafa undan kyn­fræðslu í grunn­skólum lands­ins. Í gær voru svo haldin mót­mæli fyrir utan Alþingi undir nafn­inu „Látið börnin okkar í friði – Friðsæl mót­mæli“ og skráðu alls 26 ein­stak­lingar sig í þau mót­mæli. Þórdís Elva Þor­valds­dóttir, bar­áttu­kona og rit­höf­undur, gerði umræðu und­an­farna daga að umtals­efni í nýjum pistli sem hún birti á Facebook. Þar hvetur hún til sam­stöðu gegn fáfræði, leggur áherslu á hversu mik­il­væg kyn­fræðsla sé og að fámennur hópur eigi ekki að kom­ast upp með að dreifa lygum.

„Kyn­fræðsla kennir börnum nefni­lega hver mann­rétt­indi þeirra eru. Barn­a­níð­ingum stafar rétti­lega mikil ógn af kyn­fræðslu, því það er miklu erf­ið­ara að mis­nota barn sem þekkir rétt sinn. Barn sem þekkir rétt sinn er ólík­legra til að trúa lyg­unum sem ofbeld­is­fólk mat­reiðir ofan í það, og er lík­legra til að segja frá,“ sagði Þórdís meðal ann­ars í pistl­inum.

„Vitandi þetta, og þekkj­andi ótal hlið­stæður frá öllum heims­hornum þar sem kyn­fræðsla dregur úr kyn­ferð­is­of­beldi, fall­ast mér hendur yfir þeirri fáfræði sem end­ur­spegl­ast í því að full­orðið fólk taki sig saman og mót­mæli kyn­fræðslu (sem þau kalla reyndar „klám­fræðslu“ í með­fylgj­andi skjá­skoti) undir því yfir­skini að það „verndi börn“. Stærsta ógnin við vel­ferð barna á þessu sviði er ekki þekk­ing, heldur fáfræði sem við­heldur þögn – en eins og níð­ingar þekkja vel þrífst ofbeldi best í þögn­inni.Verum tor­tyggin gagn­vart þeim sem vilja að börn þekki ekki rétt­indi sín. Fólk sem vill ekki að aðrir kunni að draga mörk er oft sama fólkið og hag­nýtir sér marka­leysi ann­arra,“ og segir að fólk þurfi að passa sig á ein­stak­lingum sem dreifum lygum.„Við lifum á tímum upp­lýs­inga­óreiðu, og þess vegna er mik­il­vægt að við leyfum ekki fámennum hópi að dreifa ósann­indum. Þau hafa reyndar rétt fyrir sér varð­andi eitt: Börn verð­skulda vernd. Besta verndin er fólgin í þekk­ingu, því eins og Fredrick Douglass sagði rétti­lega: Það er auð­veld­ara að byggja upp sterkt barn en að tjasla saman nið­ur­brotnum full­orðnum ein­stak­ling.“

Hægt er að lesa allan pistil­inn hér fyrir neðan

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar