Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Heimildin hafnar ásökunum Jóns Gunnarssonar: „Kom að engu leyti að gerð upptakanna“

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, rit­stjóri á Heim­ild­inni sendi rétt í þessu frá sér yfir­lýs­ingu vegna ummæla Jóns Gunn­ars­sonar um blaða­menn Heim­ild­ar­innar.

Neitar hún þar alfarið að Heim­ildin hafi komið að „blekk­ing­ar­leik“ og „njósnum“ sem Jón lýsti bæði á Facebook og á Bylgj­unni í morgun. Segir Ingi­björg að upp­tökur af einka­sam­tali sonar Jóns við hinn sviss­neska „fjár­festi“ hafa verið í dreif­ingu og að blaða­menn Heim­ild­ar­innar hafi ein­fald­lega unnið vinn­una sína með því að hafa sam­band við þá aðila sem málið snýst um, til að gefa þeim tæki­færi á að svara fyrir sig.

Hér má lesa yfir­lýs­ing­una í heild sinni:

Yfir­lýs­ing vegna ummæla sér­staks full­trúa for­sæt­is­ráð­herra um blaða­menn

Jón Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra og nýskip­aður sér­stakur full­trúi Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra í mat­væla­ráðu­neyt­inu, heldur því fram í Facebook-færslu sem vitnað er til í fréttum flestra vef­miðla í dag og í við­tali við Bylgjuna að frétta­mið­ill­inn Heim­ildin hafi átt aðild að „blekk­ing­ar­leik“ og „njósnum“. 

Ólíkt stað­hæf­ingum Jóns er stað­reyndin sú að Heim­ildin á enga aðkomu að gerð leyni­upp­taka sem erlendur aðili hefur gert af sam­tölum sínum við son Jóns, sem er jafn­framt við­skipta­fé­lagi Jóns og fyrr­ver­andi for­maður Félags hrefnu­veiði­manna. 

Upptökur af sam­töl­unum hafa hins vegar farið í dreif­ingu. Heim­ildin hafði um helg­ina sam­band við þá aðila sem efni sam­tal­anna varpa grun­semdum á. Til­gang­ur­inn er að varpa ljósi á atburða­rás­ina og að gefa máls­að­ilum færi á að skýra mál sitt, en það er hefð­bundið hlut­verk frétta­miðla, ólíkt því að birta ein­hliða ásak­anir eða ávirð­ingar, eins og þær sem Jón Gunn­ars­son hefur fært fram gegn Heim­ild­inni og nafn­greindum aðilum.

Heim­ildin kom að engu leyti að gerð upp­tak­anna. Ásakanir Jóns Gunn­ars­sonar eru rangar, enda liggur fyrir að Jón hefur engar upp­lýs­ingar um aðkomu Heim­ild­ar­innar að mál­inu aðrar en spurn­ingar blaða­manna um yfir­lýs­ingar á upp­tök­unni. Þvert á móti ​var til­urð fyr­ir­spurn­ar­innar útskýrð​ í sam­tölum við son hans og við­skipta­fé­laga síð­ast­lið­inn föstu­dag. 

Jón gefur í skyn að fyr­ir­spurnir Heim­ild­ar­innar um yfir­lýs­ingar sonar hans og við­skipta­fé­laga teng­ist stjórn­mála­flokknum Sam­fylk­ing­unni. Heim­ildin er óháð hags­muna- og stjórn­mála­öflum. Hún er í dreifðu eign­ar­haldi, meðal ann­ars starfs­manna, og er rekin með sjálf­bærum hætti í krafti ákvarð­ana ein­stak­linga um að ger­ast áskrif­endur.

Nánar verður fjallað um atburða­rás­ina í Heim­ild­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn