Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Páll skipstjóri segir ný gögn komin fram í byrlunarmálinu: „Stefán Eiríksson bendir bara á Þóru“

Páll Steingrímsson og Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Kveiks. Myndin er samsett
Páll Stein­gríms­son og Þóra Arn­órs­dóttir, fyrr­ver­andi rit­stjóri Kveiks. Myndin er sam­sett

„Þetta kemur mér ekki á óvart, miðað við gögnin sem ég fékk á föstu­daginn,“ sagði Páll Steingrímsson skip­stjóri í samtali við Mannlíf en hann segist hafa fengið ný gögn frá lögreglunni í símastuldsmálinu.

Þóra Arnórs­dóttir, fyrrum ritstjóri frétta­skýringa­þáttarins Kveiks á Ríkis­útvarpinu var yfirheyrð af lögreglu á þriðjudaginn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Norður­landi eystra á umfjöllun Kjarnans og Stundarinnar um skæruliða­deild Samherja. Páll Steingrímsson, skip­stjóri og meðlimur í hinni svokölluðu skæruliða­deild, segist ekki hissa á yfirheyrslunni því lögreglan hafi nýverið látið honum í té gögn í málinu.

Sjá einnig: Löggan hundeltir Þóru

„Þetta kemur mér ekki á óvart, miðað við gögnin sem ég fékk á föstu­daginn. Ég fékk gögn á föstu­daginn frá lögreglunni og það kemur mér ekki á óvart að Þóra hafi verið yfirheyrð aftur,“ sagði Páll í samtali við Mannlíf. Aðspurður um það hvaða gögn það væru sagði Páll: „Það kemur fram í yfirheyrslu við aðila sem viðurkennir fyrir rannsóknar­lögreglu héraðs­saksóknara, að hafa látið starfs­mann Rúv fá símann minn. Og það kemur líka fram að það var rakið símanúmer til Þóru. Stefán Eiríksson bendir bara á Þóru. Og þetta símanúmer er nákvæmlega eins og mitt símanúmer en það munar einum staf.“ Þegar Mannlíf biður hann að útskýra það sagði Páll: „Það þýðir það að ef þú skoðar símreikninginn þinn þá eru alltaf tveir síðustu stafirnir í númerinu með X. Þannig að ef lögreglan skoðar símreikningana myndi hún allan daginn halda að þetta væri síma­númerið mitt. En þarna bara lét starfs­maður Rúv útbúa símanúmer sem er eins og síma­númerið mitt, af einhverjum ástæðum.“

Sjá einnig: Páll skip­stjóri: „Hún hefur ríkis­fjölmiðil landsins og nokkrar hjáleigur en ég hef bara Facebook“

Mannlíf heyrði einnig í Þóru Arnórs­dóttur og spurði hana hvort hún hefði áhyggjur af málinu en svarið var stutt og laggott: „Nei.“ Þegar henni var tjáð að Páll Steingrímsson hefði fengið gögn frá lögreglunni um málið nýlega sem bendli Rúv við símann hans svaraði Þóra: „Veistu það, þetta mál er fáránlegt og ég býst við því að því verði lokað fljótlega en ég ætla ekkert að ræða það meira.“

Ekki náðist í Stefán Eiríksson útvarps­stjóra Rúv við vinnslu fréttarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim