Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Stjórnvöld gagnrýna fréttamennsku RÚV

RÚV hafði greint frá lokun á 20 hjúkrunar­rýmum

RÚV í Efstaleiti
RÚV í Efsta­leiti Mynd: Víkingur

Heilbrigðis­ráðuneytið og Heilbrigðis­stofnun Suður­lands (HSU) hafa sent frá sér tilkynningu þar sem brugðist er við frétta­flutningi RÚV um fyrir­hugaðar breytingar á hjúkrunar­þjónustu á Selfossi. Þar kemur fram að rangt hafi verið að draga þá ályktun að 20 hjúkrunar­rými á Suður­landi muni leggjast niður.

Í tilkynningunni segir að um mitt næsta ár sé gert ráð fyrir að fyrsti áfangi framkvæmda við endur­bætur og viðbyggingu húsnæðis HSU á Selfossi hefjist. Markmið verk­efnisins sé að bæta aðstöðu, efla þjónustu og skapa betri umgjörð fyrir sjúklinga, íbúa og starfs­fólk.

Þegar framkvæmdir hefjast verður hjúkrunar­deildinni Ljós­heimum, þar sem eru 20 hjúkrunar­rými, lokað og starfsemi heilsu­gæslunnar flutt í húsnæðið. Engar breytingar verða hins vegar á rekstri hjúkrunar­deildarinnar Fossheima.

Fram kemur að þegar nær dregur lokun Ljósheima verði hætt að taka við nýjum íbúum þegar rými losna. Núverandi íbúum verði boðið að flytjast á önnur hjúkrunar­heimili, þar á meðal Fossheima, Móberg á Selfossi eða Ás í Hvera­gerði, í samráði við óskir þeirra og aðstand­enda.

Stjórn­völd segjast leggja áherslu á að hjúkrunar­rýmum á Suður­landi muni ekki fækka þrátt fyrir lokun Ljósheima. Nýtt hjúkrunar­heimili Áss í Hvera­gerði verður tekið í notkun um mitt næsta ár og mun bæta við 26 nýjum hjúkrunar­rýmum.

Jafnframt er bent á að forgangur Land­spítala að rýmum á Móbergi hafi verið afnuminn eftir opnun nýrra hjúkrunar­rýma á höfuð­borgar­svæðinu. Því muni fleiri rými á Móbergi standa íbúum Suður­lands til boða en áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim