Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Gamanleikkona upplýsti Guardian um ásakanir á hendur David Walliams

Lucy Beaumont ótt­ast að missa sjón­varps­fer­il­inn eftir að hafa upp­lýst um David Walliams

Áhyggjur af ungum konum
Áhyggjur af ungum konum Lucy Beaumont seg­ist hafa leitað til The Guardian eftir að hafa heyrt af sam­skiptum Davids Walliams við ungar konur. Walliams hafnar ásök­unum um að hafa mis­notað stöðu sína. Mynd: Instagram

Gam­an­leik­konan Lucy Beaumont, 43 ára, stað­festir að hún hafi verið ein þeirra sem létu The Guardian vita af ásök­unum um hátt­semi grínist­ans David Walliams. Hún segir ungar konur hafa verið ber­skjald­aðar í sam­skiptum við hann og að ein þeirra hafi jafn­vel verið bundin trún­að­ar­samn­ingi sem bann­aði henni að ræða málið við fjöl­skyldu og vini.

Beaumont greindi frá þessu í við­tali við Sky News í kjöl­far þess að Walliams tap­aði máli fyrir hæsta­rétti þar sem hann reyndi að koma í veg fyrir að fjöl­miðl­arnir The Guardian og Independent Tel­evision News birtu ásak­anir á hendur honum.

Fyrir dómi kom fram að fjöl­miðl­arnir hygð­ust birta ásak­anir um að Walliams hefði nýtt sér frægð sína og stöðu til að ná sam­bandi við ungar konur og átt við þær óvið­eig­andi kyn­ferð­is­leg sam­skipti sem fælu í sér mis­notkun.

Beaumont sagði fyrst hafa heyrt af mál­inu fyrir þremur árum þegar ungur starfs­maður í sjón­varps­brans­anum leit­aði til hennar. Starfs­mað­ur­inn hafði meðal ann­ars verið lát­inn fylgja ungum stúlkum, sem sagðar voru eldri en 16 ára, í bún­ings­her­bergi Walliams.

„Það sem vakti sér­stakar áhyggjur hjá mér var að þetta voru stúlkur úr verka­lýðs­stétt og sumar þeirra höfðu aldrei komið til Lundúna áður. Þær höfðu enga reynslu af sjón­varps­brans­anum og starfs­mað­ur­inn taldi þær ber­skjald­aðar,“ sagði Beaumont.

Bætti hún við: „Ég vann áður í skólum og hef fengið þjálfun í að vernda börn og ung­menni. Ég gerði allt sem ég gat í kyrr­þey og þegar ég hef heyrt orðróm um ein­hvern hef ég alltaf reynt að gera allt sem í mínu valdi stendur. En það er bara svo margt sem maður getur gert. Ég er ekki lög­reglan. Ekkert af þessu virð­ist vera ólög­legt.“

Hún ákvað að hafa sam­band við The Guardian þar sem hún taldi ekki vera neina við­eig­andi leið til að til­kynna slík mál innan sjón­varps­brans­ans.

Beaumont tók fram að hún hefði sjálf aldrei orðið vitni að óvið­eig­andi hegðun Walliams en reynt að ná sam­bandi við eina stúlk­una sem sögð var hafa verið leidd í bún­ings­her­bergi hans. Hún segir stúlk­una hafa verið í mjög slæmu and­legu ástandi og ótt­ast að hún myndi svipta sig lífi.

„Ég hafði miklar áhyggjur af henni. Satt að segja ótt­að­ist ég að hún myndi taka eigið líf vegna þessa. Hún hafði birt ýmis­legt á net­inu og gögn bentu til þess að hún hefði verið í bún­ings­her­bergi. Ég bauðst til að greiða lög­fræði­kostnað til að reyna að tryggja henni vernd,“ sagði Beaumont.

Hún telur að stúlkan hafi und­ir­ritað trún­að­ar­samn­ing sem bann­aði henni ekki aðeins að ræða málið við fjöl­miðla heldur einnig við fjöl­skyldu sína, vini og með­ferð­ar­að­ila.

„Ég er næstum farin að gráta þegar ég segi þetta,“ sagði Beaumont í við­tal­inu.

Hún ótt­ast nú að hafa skaðað eigin starfs­frama með því að stíga fram.

„Ég held satt að segja að ég muni ekki vinna aftur í sjón­varpi. Ástæðan fyrir því að þekktir ein­stak­lingar tjá sig ekki er sú að þeir missa verk­efni og eiga á hættu að vera stimpl­aðir sem vand­ræða­geml­ingar,“ sagði hún.

Walliams hafnar ásökununum

David Walliams hafnar ásök­un­unum og seg­ist miður sín vegna þeirra. Í bréfi til blaða­manna rann­sókn­ar­innar við­ur­kenndi hann þó að hafa stundum sýnt konum sem hann átti laus­leg kyn­ferð­is­leg sam­bönd við ónóga til­lits­semi.

„Ég geri mér grein fyrir því að ég tók ekki alltaf til­finn­ingar ann­arra nægi­lega mikið með í reikn­ing­inn. Það sé ég eftir,“ skrif­aði hann.

Hann hafn­aði því hins vegar að hafa mis­notað frægð sína eða stöðu.

„Ég er ekki kyn­ferð­is­legt rán­dýr. Ég hef ekki brotið lög, en mér þykir afar leitt að sumar þeirra kvenna sem ég kynnt­ist fyrir tíu til tutt­ugu árum hafi nú lýst yfir sárs­auka eða reiði í minn garð,“ sagði Walliams.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana