Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

9 mánaða stúlka yngst greindu

Mynd / epa
Mynd / epa

Að minnsta kosti 80 hafa lát­ist af völdum kór­óna­veirunnar 2019-nCoV. Um 2.800 til­felli hafa verið greind í Kína, þar af 1.400 í hér­að­inu Hubei. Sá yngsti sem greinst hefur með veiruna er 9 mán­aða stúlku­barn.

Að sögn borg­ar­stjór­ans í Wuhan, höf­uð­borg Hubei, fá nú um 3 þús­und manns með­ferð við veirunni. Hann segir hins vegar líkur á að um helm­ingur muni grein­ast jákvæður. Flest dauðs­fall­anna, eða 76, hafa átt sér stað í Hubei en einn lést í Sjanghæ á laug­ar­dag. Þar búa 24 millj­ónir manna.

Átta til­vik hafa greinst í Hong Kong og önnur átta á Taílandi. Þá hafa fimm til­vik greinst í Banda­ríkj­unum, Taíwan, Ástralíu og Macau, fjögur í Singa­pore, Japan, Suður-Kóreu og Malasíu, þrjú í Frakk­landi, tvö í Kanada og Víetnam og eitt í Nepal.

Mynd / epa

Enginn hefur lát­ist úr veirunni utan Kína.

Borg­ar­stjóri Wuhan, Zhou Xianwang, og fleiri emb­ætt­is­menn hafa boð­ist til að segja af sér en mik­illar óánægju gætir með hæg við­brögð stað­ar­yf­ir­valda þegar veiran fór fyrst að dreifa sér meðal manna. Þá hafa íbúar einnig mót­mælt ferða­banni sem komið var á í hinni 11 milljón manna borg en Zhou hefur varið ákvörð­un­ina, sem hann sagði for­dæma­lausa.

Kínversk stjórn­völd hafa lengt nýársor­lof laun­þega um þrjá daga en fallið hefur verið frá ýmsum hátíð­ar­höldum sem voru skipu­lögð vegna ára­móta. Hund­ruðir millj­óna Kínverja ferð­ast jafnan á þessum tíma árs til að hitta fjöl­skyldu og vini eða fara í frí, sem gerir yfir­völdum erf­ið­ara fyrir við að bregð­ast við og reyna að hamla útbreiðslu veirunnar.

Lestu: Rík­is­lög­reglu­stjóri lýsir yfir óvissu­stigi vegna kór­óna­veiru

Margir ferða­manna­staðir hafa lokað tíma­bundið, þeirra á meðal hlutar Kína­m­úrs­ins, Forboðna borgin og Disney-garð­arnir í Sjanghai og Hong Kong.

Íbúar í Wuhan hafa ennþá aðgang að mat og nauð­synja­vörum. Þó eru mörg apó­tek orðin uppi­skroppa með and­lits­grímur, sótt­hreins­andi og aðrar vörur sem eru taldar hjálpa til við að verja fólk gegn veirunni.

Fjöldi ríkja hefur ákveðið að flytja rík­ís­borg­ara sína á brott frá Wuhan, þeirra á meðal Banda­ríkin, Frakk­land, Japan og Rússland. Fregnir hafa borist að því að banda­rískur faðir þriggja barna hafi afþakkað boð um heim­flutn­ing, þar sem eig­in­konu hans, sem er kín­verskur rík­is­borg­ari, bauðst ekki að fara með honum.

Umfjöllun New York Times.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé