Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

„Lifa snýst um lífið sem þú lifir í dag og lífið sem þú vilt geta lifað síðar.“

Guðmundur Þ. Þórhallsson
Guð­mundur Þ. Þór­halls­son Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna breytir um nafn og útlit Mynd: Aðsend

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hyggst breyta nafni sínu í Lifa líf­eyr­is­sjóð. Tillagan verður lögð fyrir auka­árs­fund sjóðs­ins mánu­dag­inn 16. nóv­em­ber og tekur breyt­ingin gildi að feng­inni stað­fest­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis.

Í til­kynn­ingu frá sjóðnum segir að nýja nafnið end­ur­spegli þróun hans og fjöl­breytt­ari hóp sjóð­fé­laga en áður. Sjóð­ur­inn hafi í auknum mæli þjónað fólki úr ólíkum starfs­greinum en ekki ein­göngu versl­un­ar­mönnum.

Snýr að fjárhagslegu öryggi alla ævi

Samkvæmt til­kynn­ing­unni er nafnið Lifa hugsað sem eðli­leg þróun á heiti sjóðs­ins, en stytt­ingin Live hafi verið orðin ráð­andi. Nafnið sé jafn­framt íslenskt og vísi til sagn­ar­innar að lifa.

„Lifa snýst um lífið sem þú lifir í dag og lífið sem þú vilt geta lifað síðar. Hlutverk okkar er að byggja upp fjár­hags­legt öryggi sjóð­fé­laga til fram­tíðar og veita mik­il­væga vernd ef óvænt áföll verða,“ segir Guð­mundur Þ. Þór­halls­son, fram­kvæmda­stjóri sjóðs­ins.

Hann segir líf­eyr­is­mál ekki aðeins snú­ast um eft­ir­launa­árin heldur einnig um lífs­gæði og fjár­hags­legt öryggi alla ævi.

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefur starfað í 70 ár og er einn stærsti lang­tíma­fjár­festir lands­ins. Með nafna­breyt­ing­unni horfi sjóð­ur­inn fram á veg­inn og til næstu ára­tuga.

Nýtt merki fylgir nafnabreytingunni

Samhliða nafna­breyt­ing­unni hyggst sjóð­ur­inn taka upp nýtt merki. Það myndar bók­staf­inn L og sam­anstendur af formum sem breiða úr sér líkt og ljós­geislar frá sam­eig­in­legum upp­haf­s­punkti.

Að sögn sjóðs­ins á merkið að end­ur­spegla ólík augna­blik lífs­ins, ný tæki­færi og hlut­verk sjóðs­ins sem trausts lífs­föru­nautar sjóð­fé­laga.

Nafna­breyt­ingin byggir að sögn sjóðs­ins á ítar­legri grein­ingu og vinnu fag­að­ila.

Réttindi og þjónusta haldast óbreytt

Nafna­breyt­ingin hefur ekki áhrif á rétt­indi sjóð­fé­laga eða þjón­ustu. Sjóð­ur­inn verður áfram sá sami og starfar undir sömu kenni­tölu.

Stjórn sjóðs­ins hefur sam­þykkt breyt­ing­una og verður hún lögð fyrir auka­árs­fund á Hilton Reykja­vík mánu­dag­inn 16. nóv­em­ber, á degi íslenskrar tungu. Nýja nafnið tekur gildi að lok­inni stað­fest­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum