Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Stórhættulegt ástand: „Um fertugt gæti maður jafnvel verið kominn með krabbamein“

Reyklaust Ísland 2000 nefndist samstarfs­hópur sem komið var á fót árið 1985 að frumkvœði Krabbameins­félagsins. Í honum voru fulltrúar fjölmargra félaga­samtaka sem sameinuðust um að ná því marki að Ísland yrði orðið reyklaust árið 2000.

Hið háleita markmið tókst ekki en það er alltaf gott að dreyma stórt.

Margir sem lifðu á níunda áratugnum munu sjálfsagt eftir auglýsingu sem ekki er hægt að segja að hafi elst vel. Í auglýsingunni má sjá fegurðadrottningarnar Sif og Hófí ganga um götur Reykja­víkur í faðmlögum og bjóða öllum sem þær sjá að ganga í Reyklausa liðið með þeim. Umferða­lögreglan, unglingar og verkamenn svo einhverjir séu nefndir veifa glaðlega og ganga til liðs við þær í hoppandi gleði og skoppa með þeim um borgina. Lag sem gæti vart verið meira „’80“ spilast undir en rándýr textinn rammar svo inn falleg skila­boðin.

„Af stað, fylgdu mér
áður en að sígarettan gengur frá þér
segðu stopp, dreptu í
settu rettuna í ævilangt frí

gakktu í Reyklausa liðið
það er lið í lagi
gakktu í Reyklausa liðið
það er lið í lagi
gakktu í Reyklausa liðið
það er lið í lagi
í lagi!“

Í Æskunni var fjallað um þetta átak en þær stöllur, Sif og Hófí skrifuðu bréf til lesenda blaðsins.

„Hæ, krakkar!

Við megum til með að skrifa ykkur nokkrar línur. Okkur þykir leitt til Þesss að vita að sumir unglingar skuli vera að byrja að reykja enn þann dag í dag þó að allir ættu að geta séð að sígarettur eru „tóm tjara“, samsafn af skaðlegum efnum sem fara inn í líkamann og skemma hann, fingurnir gulna, húðin eldist og hrukkast fljótar og um fertugt gæti maður jafnvel verið kominn með krabba­mein eða kransæða­stíflu af reykingunum.“

Því næst velta þær fyrir sér hvers vegna krakkar vilji taka áhættuna á að velja og hafna þegar kemur að reykingum.

„En hvers vegna þá að reykja? Sumum finnst það kannski töff,
aðrir reykja fyrst í stað bara í frímínútum af því að vinirnir gera það en einnig til að skera sig ekki úr hópnum. En vittu til, ef þú ein eða einn af þeim sem skera sig úr einhverjum hópnum með því að reykja ekki þá munu vinirnir öfunda þig að ári liðnu þegar beir
ákveða að reyna að reyna að hætta en vaninn hefur gripið þá heljar­greipum. Þá ert það þú sem ert laus við reykingar­fýluna úr hári og fötum og allan sóða­skapinn í kringum sígaretturnar.“

Þær Sif og Hófí ráðlögðu svo krökkum að kaupa ekki fyrsta pakkann því þau viti „sjálf að þá er hætt við að þið ljúkið úr honum fyrr en síðar.“ Þá eru þau sem eiga nú þegar pakka í vasanum, ráðlagt að henda honum og skreppa frekar í sund eða út á skokka. „Þegar þið komið aftur eruð þið búin að gleyma sígarettunum.“

Ljóst er að á þessum árum hafi reykingar grunn­skólabarna verið talsvert algengari en þær eru í dag en hver veit nema að ástæðan fyrir batnandi lýðheilsu barna og unglinga á Íslandi megi að einhverju leyti rekja til Reyklausa liðsins?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim