Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Lítið um netárásir tyrkneska hakkara þrátt fyrir sigur Íslenska landsliðsins

„Það var sett af stað ákveðið við­bragð við þessum árásum og tókst bara mjög vel,” segir Þóra Tóm­as­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Advania, um netárásir sem herj­uðu yfir vef­síðu KSÍ á mánu­dag.

Mynd úr safni
Mynd úr safni

„Árás­irnar fólust í því að fram­kalla umferð um vef­inn. Það er ómögu­legt að greina hvaðan þær koma,” segir Þóra og bætir við; „Við erum með varnir gegn þessu og sú vinna hefur gengið vel.“ Tilefni árásanna var þvotta­burst­inn sem birt­ist í mynd þegar tekið var við­tal við lands­liðs­fyr­ir­lið­ann Emre Belözoglu.

Stuðn­ings­menn Tyrkja voru ekki par sáttir við upp­á­tækið og sumir þeirra full­yrtu að um kló­sett­bursta væri að ræða. Þeir litu á gjörn­ingin sem gríð­ar­lega móðgun við fyr­ir­lið­ann og þjóð­ina. Þá skildu margir eftir athuga­semd á Facebook-færslu KSÍ.

Vefsíða Isavia aftur fullvirk eftir tölvuárás

Mevlüt Çavuşoğlu, utan­rík­is­ráð­herra Tyrk­lands, for­dæmdi með­ferð­ina sem tyrk­neska lands­liðið fékk á Kefla­vík­ur­flug­velli við komu á sunnu­dag­inn. Hann sagði með­ferð­ina óásætt­an­lega og ekki í takt við góð sam­skipti milli ríkja. Fyr­ir­liði lands­liðs­ins hélt því fram að þeir hafi taf­ist um þrjár klukku­stundir á flug­vell­inum vegna sér­stakrar örygg­is­leitar. Síðar kom í ljós að rúm klukku­stund leið frá lend­ingu þar til þeir komust út úr Leifs­stöð. Þá var örygg­is­leitin hluti af almennu verk­lagi Isavia. Flug tyrk­nesku leik­manna kom frá flug­velli utan Schengen-svæð­is­ins og því óvott­aður.

Vefsíða Isavia, sem birtir flugupp­lýs­ingar fyrir alla íslenska áætl­un­ar­flug­velli, lá niðri í um tvo tíma vegna tölvu­árása á mánu­dag. Samkvæmt til­kynn­ingu Isavia er um að ræða svo­kall­aða ddos árás. Þá er fram­kölluð umferð á vef­síð­una með þús­undum sýnd­arnot­enda. Með þeim hætti náðu óprút­tnir aðilar að gera vef­síð­una óvirka.

„Það er búið að vera vinna í síð­unni og setja upp varnir og það hefur verið í gangi síðan á mánu­dag­inn,” segir Guðjón Helgason, upp­lýs­inga­full­trúi Isavia. „Vefsíðan hefur verið full­virk síðan við fórum af stað í það. Mögulega hafa árásir haldið áfram en við erum þá búnir að hrinda þeim frá.” Hann seg­ist þá ekki hafa fengið neina útlistun á því.

Samkvæmt frétt tyrk­neska fjöl­mið­ils­ins Yeni akit stóðu tyrk­neskir hakk­arar á bak við árás­ina. Hópurinn, sem kallar sig Anka Neferler Tim, hafi með þessu ætlað að hefna fyrir mót­tökur sem tyrk­neska karla­lands­liðið í fót­bolta fékk á Kefla­vík­ur­flug­velli á sunnu­dags­kvöld. Hakk­ara­hóp­ur­inn heldur úti Twitter-síðu. Þar má sjá færslur sem fjalla um árásir á síðu Isavia.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas