Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Össur og Teitur ósammála um ákvörðun Þórðar Snæs: „Ísland er aðeins verra í dag en það var í gær“

Össur Skarphéðinsson
Össur Skarp­héð­ins­son Mynd: Facebook

Össur Skarp­héð­ins­son er einn af þeim sem fagnar ákvörðun Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar um að taka ekki sæti á Alþingi, nái hann kosn­ingu fyrir Sam­fylk­ing­una í kom­andi kosn­ingum. Teitur Atlason er honum ósam­mála.

Líf­fræð­ing­ur­inn og fyrrum ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar, Össur Skarp­héð­ins­son hefur verið áber­andi á Facebook und­an­farið en hann hefur verið dug­legur að tjá sig um menn og mál­efni sem tengj­ast kom­andi Alþing­is­kosn­ingum. Í nýrri færslu fagnar hann ákvörðun Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, fyrrum rit­stjóra og fram­bjóð­anda Sam­fylk­ing­ar­innar, um að taka ekki við sæti á þingi, nái hann kosn­ingu. Þá ákvörðun tók Þórður Snær í kjöl­far gríð­ar­legs bakslags vegna gam­alla blogg­færsla þar sem hann sýndi af sér kven­fyr­ir­litn­ingu og for­dóma. Össur skrif­aði:

„Hárrétt við­brögð. Gildandi kosn­inga­lög koma í veg fyrir að hægt sé að “reka” fram­bjóð­anda af lista með flokksaga. Viðbrögð Kristrúnar Frosta­dóttur við ósæmi­legum sora­textum Þórðar Snæs voru hins vegar svo hörð að hann tók sjálfur þá hár­réttu ákvörðun að stíga til hliðar með yfir­lýs­ingu um að hann tæki ekki sæti á Alþingi, næði hann kjöri. Hann hefði ekki þurft að gera það – en hann gerði það. Ákvörðun Þórðar var drengi­leg– og ber að virða. Kristrún tók hár­rétt á mál­inu og þau eru bæði mann­eskjur að meiri.“

Teitur Atlason, fyrr­ver­andi vara­borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar svarar færslu Össurar í athuga­semd þar sem hann segir að Ísland sé „aðeins verra í dag en það var í gær.“

„Ég er ekki sam­mála. Eftir þetta Ísland aðeins verra. Hin háheilögu og hneyksl­un­ar­gjörnu unnu stóran sigur og ráða héðan í frá ferð­inni. Línan um hvað má og ekki má, er komin tölu­vert neðar en hún var. Einungis þau sem hafa ekk­ert sagt, sem ekk­ert hefur falið á, sem ekk­ert hafa pru­fað, sem ekk­ert hafa gert og aldrei skamm­ast sín fyrir neitt, eru núna leyfi­leg í sam­fé­lags­deigl­una. Verði okkur að góðu. Ísland hinna skandal­fríu er ömur­legur staður. Ömur­legur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn