Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-GNA sótti slasan skipverja og flutti á Landspítalannn á sjötta tímanum í morgun. Guðmundur Rúnar Jónsson vaktstjóri hjá Landhelgisgæslunni staðfesti upplýsingarnar við fréttastofu RÚV.
Togarinn sem var staðsettur út af Snæfellsnesi fékk á sig brotsjó. Skipverjinn fótbrotnaði í kjölfarið. Þyrlan lenti með manninn við Landspítalann um klukkan átta í morgun.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir