Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Skyndilegt andlát ungs fréttaþular mikið áfall: „Minningar mínar um Ana munu aldrei dofna“

Frétta­þul­ur­inn Ana Orsini, sem starf­aði fyrir stað­bundna mið­il­inn KOLD-TV sem var sam­starfs­að­ili CBS, lést skyndi­lega á dög­unum, aðeins 28 ára að aldri. Sam­starfs­menn hennar deildu sorg­ar­frétt­unum í beinni útsend­ingu þann 16. des­em­ber. Dán­ar­or­sök Orsini var heila­blóð­fall vegna æða­gúlps, sam­kvæmt miðl­inum.

„Sorg­legar fréttir sem við höfuð að deila með ykkur,“ sagði frétta­þul­ur­inn Tyler Butler við áhorf­endur í útsend­ing­unni. „Ástkær vin­kona okkar og með­stjórn­andi, Ana Orsini lést óvænt í síð­ustu viku. Ana hafði verið hér á 13 News síðan í júní 2023,“ hélt Carsyn Currier, með­þulur Butlers, áfram og felldi tár, „og við erum nið­ur­brotin yfir þessum missi.

Þegar Butler rétti Currier hug­hreystandi hönd, varp­aði hann ljósi á hressandi eðli Orsini.

„Við fengum tæki­færi til að vinna með henni á hverjum degi,“ sagði hann, „Og við viljum að þið vitir að það sem þú sást í sjón­varp­inu með henni, hina fyndnu, klikk­uðu mann­eskj­una sem hún var,  hún var alveg eins utan mynda­vél­ar­innar og jafn­vel meira þannig“

Orsini hóf feril sinn árið 2018 eftir útskrift frá Texas A&M háskól­anum, þegar hún tók við starfi sem frétta­þulur og blaða­maður í Lubbock, Texas, sam­kvæmt fer­il­skrá hennar. Orsini eyddi síðan þremur árum sem morgun- og hádeg­is­frétta­þulur í Medford, Oregon, áður en hún gekk til liðs við KOLD-TV í Tuscon, Arizona.

Butler hélt áfram að minn­ast Orsini á sam­fé­lags­miðlum og lýsti henni sem „nátt­úru­afli“.

„Ég held áfram að hugsa um hvernig ég gerði stundum grín að sjálfum mér,“ rifj­aði hann upp í Facebook-færslu í gær, 17. des­em­ber, „Og hún svar­aði: „Hey! Ekki tala svona um vin minn!“. Einlæg umhyggja hennar fyrir öllum í kringum hana verður saknað.“

Currier skrif­aði einnig ein­læg skila­boð um Orsini, sem hún kall­aði „eina af bestu vinum“ sínum.

„Að vakna um miðja nótt til að fara í vinn­una er alltaf krefj­andi,“ skrif­aði Currier á Instagram, „En að vita að ég væri að fara að vinna með Ana gerði þetta miklu auð­veld­ara. Hvort sem hún var að dansa í kringum leik­mynd­ina eða að fá okkur öll til að hlæja, þá voru allir dagar með Ana ævin­týri.“ Bætti hún við að lokum: „Tíminn kann að líða, en minn­ingar mínar um Ana munu aldrei dofna. Ég elska þig að eilífu, Ana.“

Hér fyrir neðan má sjá sam­starfs­fólk og vini Önu minn­ast hennar:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Heimur

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Charles Paxton segir fjölda tilkynninga sveiflast milli ára. Dýr, bátsöldur, vindur og gróður geti skýrt það sem fólk telur sig sjá.
Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Heimur

Íran vísar á bug fréttum um áform um efna­vopna­árás í Banda­ríkj­unum

Heimur

Móðir fékk son sinn aftur eftir ólýs­an­lega martröð

Heimur

Björn réðst á mann í Japan

Heimur

Lög­reglan lagði hald á þús­undir ólög­legra kyn­lífs­vara á Kanarí­eyjum