Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Íslenskar konur prjóna fyrir börn á Gaza

Norskt frið­ar­verk­efni nær til Íslands

Selbuvettlingar
Sel­bu­vett­lingar Fallegri ger­ast þeir varla, vett­ling­arnir Mynd: Instagram-skjáskot

Gras­rót­ar­verk­efni sem hófst í Noregi í jan­úar síð­ast­liðnum hefur nú náð til Íslands undir heit­inu Sel­bu­vett­lingar fyrir Frið. Verk­efnið felst í því að prjóna hefð­bundna norska vett­linga í fána­litum Palest­ínu og láta and­virðið renna til mann­úð­ar­sam­taka sem starfa á Gaza.

„Í jan­úar 2024 sat skosk-paki­stönsk kona heima hjá sér í Noregi og reif í hárið á sér, eins og maður segir, af ang­ist yfir því hvernig er farið með Palest­ínsku þjóð­ina,“ segir Sigrún Har­alds­dóttir, sem stendur að verk­efn­inu hér á landi, í sam­tali við Mannlíf. „Hana lang­aði að gera eitt­hvað til að hjálpa til og ákvað að prjóna svo­kall­aða Sel­bu­vett­linga (Íslend­ingar þekkja þá sem Bet­lehems­stjörn­una í prjóna­munstri eða bara norskt munstur) í fána­litum Palest­ínu.“

Upp­hafs­konan heitir Iffit Sætre Qureshi og er ljós­mynd­ari og rit­höf­undur.

Segist hún, í sam­tali við Mannlíf hafa unnið mjög hart að því að þróa þetta verk­efni frá A til Ö, allt frá hönnun og skipu­lags­upp­bygg­ingu til gild­anna og sam­fé­lags­ins sem liggur að baki. Hvert ein­asta skref í þróun verk­efn­is­ins hefur verið vand­lega íhugað, að hennar sögn.

„Við höfum vaxið úr litlu íbúð­inni minni í Ósló yfir í að hafa prjón­ara í Svíþjóð, á Íslandi, í Danmörku, Þýska­landi, Kanada og Hollandi. Pantanir ber­ast nú hvaðanæva að úr heim­inum.“

Iffit setti mynd af vett­ling­unum á netið og bauð þá til sölu. „Þannig fór bolt­inn að rúlla hjá þeim hér í Noregi. Gras­rót­ar­hreyf­ingin Sel­bu­votter for Fred varð til og alltaf bætt­ust við pant­anir og fleiri prjón­a­rar. Nú hafa þau safnað yfir 2 millj­ónum norskra króna sem fara sem beinir styrkir til nokk­urra hjálp­ar­sam­taka sem starfa á Gaza, þar á meðal Lækna án landamæra,“ segir Sigrún í sam­tali við Mannlíf.

Hún vildi flytja hug­mynd­ina til Íslands og styrkja Vonarbrú, sem styður barna­fjöl­skyldur á Gaza. „Mig lang­aði mikið að koma þessu til Íslands til að afla styrkja fyrir Vonarbrú. Ég hafði sam­band við kon­una sem start­aði hreyf­ing­unni hér í Noregi og spurði hana hvort við mættum nota prjóna­upp­skrift­irnar þeirra til að koma Sel­bu­vett­lingum fyrir Frið af stað á Íslandi. Það var aufús­u­mál,“ segir hún.

Í kjöl­farið hófu Sigrún og Kristín Sæmunds­dóttir, eig­andi net­versl­un­ar­innar Svo Margt Fallegt, verk­efnið á Íslandi um mán­aða­mótin októ­ber og nóv­em­ber.

„Konseptið gengur út á það þú pantar vett­linga á Instagram­síðu eða Facebooksíðu Sel­bu­vett­lingar fyrir Frið… til­tekur stærð, lita­sam­setn­ingu og gerð munsturs, greiðir styrk beint til Von­ar­brúar og sendir mér kvittun fyrir banka-milli­færslu eða aur-færslu,“ útskýrir Sigrún. „Þegar það er komið þá finn ég prjón­ara til að prjóna vett­ling­ana þína, við erum nú þegar komnar með um 20 prjón­ara, allt konur, sem bíða eftir verk­efnum.“

Allt vinnu­fram­lag í verk­efn­inu er sjálf­boða­liða­starf. „Konurnar og við Kristín gerum þetta allt í sjálf­boða­vinnu, kaup­andi greiðir styrk­inn beint til Von­ar­brúar og garn og hugs­an­legan send­ing­ar­kostnað til prjón­a­r­ans,“ segir Sigrún.

Við­tök­urnar hafa farið fram úr vænt­ingum

„Við­tök­urnar hafa verið frá­bærar, á þessum 11 dögum hafa safn­ast 155.500 krónur til Von­ar­brúar og sífellt fleiri prjóna­konur bæt­ast í hóp­inn,“ segir hún að lokum.

👉 Panta má vett­linga eða skrá sig sem prjón­ara á linktr.ee/sel­bu­vett­lingar_fyrir_frid.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas