Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Fíkniefnabóndi í Reykjavík dæmdur í fangelsi

Við ákvörðun refs­ingar var horft til fyrri umferð­ar­laga­brota manns­ins, játn­ingar hans og tafa á útgáfu ákæru.

Miðborg Reykjavíkur
Miðborg Reykja­víkur Maður var dæmdur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir fíkni­efna­laga­brot og ítrekuð umferð­ar­laga­brot. Mynd: Stjórnarráðið

Karl­maður hefur verið dæmdur í sex mán­aða fang­elsi, þar af einn mánuð óskil­orðs­bund­inn, fyrir umfangs­mikil fíkni­efna­laga­brot og ítrekuð umferð­ar­laga­brot. Dómurinn var kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur 3. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Maðurinn var jafn­framt sviptur öku­rétti ævi­langt.

Málið á rætur að rekja til lög­reglu­að­gerða í Reykja­vík í des­em­ber 2024. Við hús­leit í bíl­skúrs­rými fundu lög­reglu­menn 184 kanna­bis­plöntur, rúm 4,4 kíló af marí­húana og tölu­vert magn ann­arra kanna­bis­efna.

Við leit í íbúð manns­ins fund­ust einnig 655 grömm af marí­húana, kanna­bis­plöntur, kanna­bis­lauf og stönglar, auk smærra magns af ketamíni, kóka­íni og lyf­seð­ils­skyldum lyfjum.

Rúmlega 1,7 milljónir í reiðufé

Lögregla lagði jafn­framt hald á 1.753.500 krónur í reiðufé sem fund­ust í stiga­húsi og á skrif­borði í íbúð í mið­borg Reykja­víkur. Ákæru­valdið taldi pen­ing­ana vera ágóða af fíkni­efna­sölu og ákærði mann­inn upp­haf­lega fyrir pen­inga­þvætti. Sá ákæru­liður var hins vegar felldur niður við fyr­ir­töku máls­ins.

Maðurinn var einnig ákærður fyrir að hafa ekið bif­reið sviptur öku­rétt­indum og undir áhrifum áfengis og fíkni­efna í nóv­em­ber 2024. Í blóði hans mæld­ist áfengi og oxýkó­don.

Við ákvörðun refs­ingar var litið til þess að mað­ur­inn hafði áður gerst sekur um sam­bæri­leg umferð­ar­laga­brot. Um var að ræða þriðja brot hans vegna akst­urs undir áhrifum ávana­bind­andi efna innan ítrek­un­ar­tíma.

Maðurinn ját­aði brot sín ský­laust. Dómurinn tók jafn­framt mið af því að hann hafði gripið til ráð­staf­ana til að bæta líf sitt og að veru­legar tafir hefðu orðið á útgáfu ákæru.

Fimm mán­uðir fang­els­is­refs­ing­ar­innar voru því skil­orðs­bundnir til tveggja ára.

Dómurinn stað­festi einnig upp­töku fíkni­efna, rækt­un­ar­bún­aðar og reiðu­fjár­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas