Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Spáir fasisma á Íslandi eftir 20 ár: „Berlusconi hafði mikil og mótandi áhrif á Davíð Oddsson“

Silvio Berlusconi
Silvio Berlusconi

Gunnar Smári Egilsson skrif­aði færslu í Facebook-hóp Sós­í­alista­flokks­ins, í til­efni frétta af and­láti Silvio Berlusconi, fyrrum for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu.

Færsluna byrjar Gunnar Smári á eft­ir­far­andi orðum:

„Einhver sagði að fólk ætti að fylgj­ast með stjórn­málum á Ítalíu, því allt sem gerð­ist þar end­ur­tæki sig síðan í öðrum löndum. Það á sann­ar­lega við Silvio Berlusconi sem komst til valda á Ítalíu löndu á undan Donald Trump í Banda­ríkj­unum eða Boris Johnson í Bret­landi. Og líka á undan Viktor Orban í Ung­verja­landi, Erdogan í Tyrk­landi eða Pútín í Rúss­landi. Og svona mætti lengi telja. Belusconi var fyr­ir­mynd þeirra sem síðar hafa verið kall­aðir Strong Man í stjórn­málum.“

Segir hann að Strong Man í stjórn­málum sé fyr­ir­brigði sem sé að „leggja undir sig heim­inn“ og nefnir þá Muti í Indlandi og Xi Jinpin í Kína sem dæmi.

„Sem er fyr­ir­brigði sem er að leggja undir sig heim­inn, helsta ein­kenni stjórn­mála dags­ins með Muti í Indlandi, Xi Jinpin í Kína og víðar. Sumir þess­arar er á hægu tölti í átt til fas­isma, aðrir á skeiði. En hjá öðrum er þetta útfærsla á for­ingja­drifnum stjórn­málum eftir hrun stjórn­mál­anna almenn­ings­sam­taka. Og þau áhrif ná miklu víðar en til þess­ara karla sem hér hafa verið taldir upp. Og ná líka til kvenna auð­vitað.

Macron í Frakk­landi kom inn í stjórn­málin út úr myrkr­inu eins og Berlusconi og hans stjórn­mál hafa ætíð snú­ist um hann sjálfan frekar en ein­hverja raun­veru­lega hreyf­ingu. Það sama átti við um Trump, hreyf­ingin verður mað­ur­inn. Repúblikana­flokk­ur­inn er flokkur Trump frekar en nokkuð sem flokk­ur­inn var áður.“

Gunnar Smári segir því næst að sjá megi sam­bæri­leg áhrif en þó í minna mæli. Segir hann Berlusconi hafa átt „mikil og mót­andi áhrif á Davíð Oddsson“.

„Hér heima sjáum við sam­bæri­leg áhrif en í minna mæli. Berlusconi hafði mikil og mót­andi áhrif á Davíð Oddsson. En Davíð er inn­vígður og inn­múr­aður í Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Sig­mundur Davíð var kall­aður að utan inn í stjórn­málin og líka Kristrún Frosta­dóttir. Líklega eru aðrir flokkar nú í leit að ein­hverri svip­aðri lausn. Sem við getum kallað Berlusconi-leið­ina.“

Í loka­orðum sínum kemur Sós­í­alista­for­ing­inn með djarfa spá um fram­tíð Íslands:

„Á meðan er Ítalía komin yfir á næsta stig sem síðan mun sam­kvæmt kenn­ing­unni breið­ast út. Þar hafa risið upp til valda flokkur sem er arf­taki fas­ista­hreyf­ingar Mus­sól­íni. Þau áhrif koma hingað eftir 20-25 ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas