Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Syneta sökk á jóladag: „Þá nótt við dóum, drottinn minn góður, drukknuðum bjarglausir einn og einn“

Breska tank­skipið Syneta var á leið til Eski­fjarðar að kvöldi jóladags árið 1986.

Skipið var að koma frá Liverpool á Englandi og átti að sigla til Vestmanna­eyja. Það var hins vegar ákveðið að breyta áætlun skipsins og sigla því fyrst til Eski­fjarðar. Þar átti skipið að taka loðnulýsi, sem svo yrði flutt til Rotterdam í Hollandi og Dunkirk í Frakk­landi. Það varð þó aldrei. Í kringum miðnætti, aðfara­nótt annars dags jóla, strandaði Syneta við Skrúð, hamraeyju í mynni Fáskrúðs­fjarðar.

Röng staðsetning

Um leið og Syneta sendi út neyðar­kall voru björgunar­sveitir ræstar út. Haft var samband við alla fiskibáta og togara sem voru í nágrenninu og lögðu fyrstu skip af stað strax á miðnætti.

Áhöfn Synetu hafði haldið að skipið væri strandað við Seley og sent út þær upplýsingar í neyðar­kallinu. Hólma­tindur SU-220 komst hins vegar að því klukkan tíu mínútur fyrir eitt eftir miðnætti, að skipið hefði strandað við Skrúð, ekki Seley.

„Síðustu samtöl við Synetu fóru fram rétt fyrir klukkan 01:00 aðfara­nótt annars dags jóla,“ segir á vef Eski­fjarðar.

Þegar Syneta strandaði í mynni Fáskrúðs­fjarðar var veður afar slæmt; élja­gangur og mikill straumur. Björgunar­bátar komust aldrei að skipinu sökum veðurs og ölduróts. Fiskibáturinn Þorri frá Fáskrúðs­firði var fyrsta björgunar­skipið á vettvang klukkan hálf tvö um nóttina, en allt í allt urðu skipin 12. Þeirra á meðal var varð­skipið Týr.

Í gegnum óveðrið og byljandi él taldi áhöfnin á Þorra sig hafa séð uppblásinn björgunarbát við hlið Synetu. Skip­verjarnir sögðu hann þó hafa verið horfinn skömmu síðar.

Mynd/skjá­skot: Morg­un­blaðið/tíma­rit.is

Einn með lífsmarki

Öll áhöfn Synetu, 12 manns, fórst í slysinu. Alls fundust lík 9 skipverja. Reyndar fannst þriðji stýri­maður skipsins með lífsmarki, en hann var dreginn um borð í Sæljónið SU-104. Skip­verjinn var meðvitundar­laus og helblár þegar hann fannst, skömmu eftir að lík fyrsta skip­verjans fannst klukkan 02:40.

Læknir var kallaður til en hann komst ekki um borð í Sæljónið fyrr en á fjórða tímanum, vegna vélar­bilunar í skipi sem hann átti að vera um borð í. Þegar læknirinn kom um borð í Sæljónið var þriðji stýri­maðurinn enn með lífsmarki, en lífgunar­tilraunir báru ekki árangur og hann lést skömmu síðar.

Líkin 9 sem fundust voru í björgunar­vestum en illa klædd að öðru leyti. Þykir það til marks um að atburða­rásin hafi verið hröð. Tvö lík runnu úr vestunum og sukku þegar verið var að draga þau um borð í björgunar­skip.

Sex áhafnar­meðlima voru breskir og sex voru frá Grænhöfða­eyjum.

Syneta. Mynd/skjá­skot: Eski­fjörður.is

Bréf í vasa stýrimannsins

Svona er sagt frá slysinu í DV, mánudaginn 29. desember 1986:

„Um klukkan 23:20 á jóladagskvöld sendu skip­verjar Synetu út neyðar­kall og skýrðu frá því að skipið hefði strandað við Seley í mynni Reyðar­fjarðar. Óskuðu þeir eftir aðstoð og voru björgunarsveitir þegar ræstar út og fyrstu skipin lögðu af stað laust fyrir klukkan 24:00.

Laust fyrir klukkan 00:50 kom í ljós að Syneta hafði strandað við Skrúð en ekki við Seley þegar skip­verjum á Hólmatindi tókst að stefnu­mæla fjar­skipti skipsins við land. Skömmu síðar, eða um fimm mínútum fyrir klukkan 01:00, skutu skip­verjar á Synetu upp neyðar­flaug en nokkru áður átti Nesradíó síðustu samtölin við skipverja.

Áður hafði orðið að samkomu­lagi á milli Nesradíós og skipverja á Synetu að þeir myndu skjóta upp neyðar­flaug klukkan 01:00 til að auðvelda stað­setningu skipsins en það að flauginni var skotið upp fimm mínútum fyrr en ráðgert hafði verið var talin vísbending um að skipið væri að leggjast á hliðina.“

Ekki er vitað með vissu um tildrög slyssins. Bréf fannst þó í vasa stýri­mannsins, sem hafði verið skrifað á aðfangadag. Í bréfinu talaði stýri­maðurinn um bilun í skipinu. Hann sagði skipið hafa verið ganglítið og að ekki hafi verið hægt að sigla því nema á fimm mílna hraða. Auk þess væri sjálfs­stýring þess í ólagi.

Það er þó óvíst hvort þessi bilun sem stýri­maðurinn lýsti gæti hafa haft eitthvað með slysið að gera. „Líklegasta ástæðan er sú að skip­stjórinn hafi farið fjarðar­villt og talið sig vera töluvert norðar eða fyrir mynni Reyðar­fjarðar, þegar hann tók stefnuna inn á Fáskrúðs­fjörð og sigldi beint í strand við Skrúð,“ segir á vef Eski­fjarðar.

„Það kom fram í plöggum eins skip­verjans að á leiðinni til Íslands hefði orðið vélar­bilun í skipinu. Mér finnst ekki ólíklegt að það og svo ókunnug­leiki hafi valdið þessu hörmulega slysi,“ sagði Grétar Rögnvarsson, skip­stjóri á Sæljóninu, í viðtali við Morgun­blaðið sunnu­daginn 28. desember árið 1986.

„Annars er ómögulegt að segja til um hvað í rauninni gerðist. Þetta hefur gerzt mjög snöggt og skip­verjar ekki átt mikla von um björgun. Ef þyrla hefði verið nærstödd held ég að hún hefði verið eina von þeirra.“

Um björgunar­aðgerðirnar sagði Grétar: „Við byrjuðum strax að leita hlémegin við eyna og í átt til okkar rak alls konar brak, tunnur og slíkt. Við náðum gúmbát frá skipinu og var rekakkerið úti, hvort sem það þýðir að menn hafi komist í bátinn eða ekki. Tveir menn fundust fljótlega og var sá sem við tókum um borð, brezkur stýri­maður, með lífsmarki. Hann dó skömmu síðar.

Síðan leið tæp klukku­stund áður en fimm lík til viðbótar náðust og voru þau tekin um borð í Eskfirðing, Geisla og Sæljónið. Mennirnir voru illa búnir og greinilegt að þeir hafa ekki haft mikinn tíma til að bjarga sér.“

Líkum skipverja Synetu var siglt til Eski­fjarðar, en landhelgis­gæslu­flugvélin TF-SYN sótti þau svo og flaug með þau til Reykja­víkur. Lík fjögurra breskra skipverja voru send heim til Bretlands, en þrír áhafnar­meðlimir frá Grænhöfða­eyjum voru jarð­settir í kirkju­garðinum í Gufunesi.

Syneta liggur ennþá við Skrúð, á 45 metra dýpi.

Mynd/skjá­skot: Morg­un­blaðið/tíma­rit.is

Með bláa vör eftir öldunnar koss

Tónlistar­maðurinn Bubbi Morthens samdi texta um slysið við lag Martins Hoffman, sem í meðförum Bubba heitir Syneta. Textinn dregur upp raunsanna og nístandi dapurlega mynd af slysinu, en sagan er sögð frá sjónar­horni skip­verjanna.

Milli jóla og nýárs um nótt við komum

í nístings­kulda, slyddu og él.

Syneta hét skipið sem skreið við landið

með skaddað stýri og laskaða vél.

Við austur­ströndina stóðum á dekki

störðum í sortans kólguský.

Drunur brimsins bárust um loftið

og bæn mín drukknaði óttanum í.

Innst í firðinum sáum við ljósin lýsa

ljósin sem komu þorpinu frá.

Um síðir þau hurfu í hríðina dökku

um hjörtu okkar flæddi lífsins þrá.

Þessa nótt skipið á skrúðnum steytti

skelfing og ótti tóku öll völd.

Í bátana komumst við kaldir og þreyttir

í kolsvarta myrkri beið aldan köld.

Þá nótt við dóum Drottinn minn góður

drukknuðum bjarg­lausir einn og einn.

Himinn og haf sýndist saman renna

okkar síðasta tak var brim­sorfinn steinn.

Í þangi við fundumst og fimm ennþá vantar

í fjörunni aldan skilaði oss.

Í hús á börum við bornir vorum

með bláa vör eftir öldunnar koss.

Ef þú siglir um sumar vinur

og sérð við Skrúðinn brimsorfin sker.

Viltu biðja þeim fyrir er fórust

þeim fimm sem aldrei skiluðu sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim