Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Komu auga á eftirlýsta bifreið í Garðabænum – Ölvuð kona sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu

Lögregla að störfum. Mynd/Lára Garðarsdóttir
Lögregla að störfum. Mynd/Lára Garð­ars­dóttir

Nóttin var afskap­lega róleg sam­kvæmt dag­bók lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en alls eru 72 mál skráð í kerf­inu frá 17:00 í gær til 05:00 í morgun. Enginn er vistaður í fanga­geymslu. Hér má sjá dæmi um verk­efni lög­regl­unnar á umræddu tíma­bili.

Fjöldi bif­reiða voru sektaðar í mið­borg­inni vegna stöðu­brota. Í Laug­ar­dalnum voru höfð afskipti af öku­manni en hann blés undir refsi­mörkum í áfeng­is­próf­un­ar­mæli en var gert að hætta akstri. Reyndist bif­reiðin ótryggð og því skrán­ing­ar­merkin fjar­lægð. Annar öku­maður var kærður fyrir að haga öku­hraða sínum ekki miðað við aðstæður. Ók hann of hratt þrátt fyrir hálku á akbraut­inni og slæm birtu­skil­yrði sökum myrk­urs. Málið var afgreitt með vett­vangs­skýrslu. Einn aðili var kærður fyrir ofbeld­istil­burði í mið­borg­inni en ekki fylgir sög­unni hvað hann nákvæm­lega gerði af sér.

Í Garðabæ kom lög­reglan auga á eft­ir­lýsta bif­reið og stöðv­aði för hennar. Tveir aðilar voru hand­teknir en konan sem ók bílnum var grunuð um akstur undir áhrifum fíkni­efna og fyrir að aka bif­reið svip öku­rétti. Bæði voru þau vistuð í fanga­klefa þar til tekin var af þeim skýrsla vegna nytja­stuldar.

Önnur kona var hand­tekin í Kópavogi grunuð um að keyra ölvuð. Sinnti hún ekki stöðv­un­ar­merkjum lög­reglu og á því yfir höfði sér kæru fyrir athæfið sem og vegna fleiri umferða­laga­brota. Kom síðan í ljós að konan reynd­ist próf­laus í þokka­bót. Var hún flutt á lög­reglu­stöð til blóð­sýna­töku og síðan sleppt að henni lok­inni.

Í Breið­holt­inu var til­kynnt um nokkra aðila sem réð­ust að tveimur en málið er í rann­sókn. Þá var öku­maður í Kópavogi kærður fyrir að hafa ekið bif­reið þrátt fyrir að vera sviptur öku­rétti en um er að ræða marg ítrekað brot hjá við­kom­andi. Einnig varð umferða­slys í Kópa­vog­inum og skemmd­ust bílar eitt­hvað en engin slys urðu á fólki.

Eign­ar­tjón á bif­reiðum varð eftir umferða­slys í Árbænum en engin slys urðu á fólki. Í sama hverfi var öku­mað­uri hand­tek­inn grun­aður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkni­efna og lyfja. Hefð­bundið ferli fór í gang og var öku­mað­ur­inn laus að sýna­töku lok­inni. Þá var kona hand­tekin í Árbænum grunuð um ölv­unar,- og fíkni­efna­akstur. Reyndist hún einnig vera svipt öku­rétt­indum. Eftir sýna­töku var henni sleppt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn