Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Sími Páls skipstjóra sagður afritaður í Ríkisútvarpinu: „Þetta símanúmer mun vera notað af Kveik“

Páll Steingrímsson og Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Kveiks. Myndin er samsett
Páll Stein­gríms­son og Þóra Arn­órs­dóttir, fyrr­ver­andi rit­stjóri Kveiks. Myndin er sam­sett

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Frosti Logason segir frá því í nýjasta þætt­inum af Harma­geddon að fram­halds­skóla­kenn­ar­inn og blogg­ar­inn Páll Vil­hjálms­son hafi komið með ansi áhuga­verða punkta í byrl­un­ar­mál­inu svo­kall­aða; þar sem RÚV (Kveikur) hefur verið sakað um að byrla fyrir skip­stjór­anum Páli Stein­gríms­syni og stolið síma hans og gögnum.

Segir Frosti að honum hafi fund­ist frá­sagnir Páls Vil­hjálms­sonar reyfara­kenndar og nán­ast ótrú­verð­ugar, og því ákvað hann að bjóða Páli í við­tal til sín – auk þess sem Frosti sjálfur lagð­ist í heil­mikla rann­sókn­ar­vinnu.

„Það er nokkuð aug­ljóst af gögnum máls­ins sem ég hef nú bæði séð í sjúkra­skýrslum og lög­reglu­skýrslum að byrl­unin átti sér svo sann­ar­lega stað. Byrlunin var lífs­hættu­leg og olli Páli skip­stjóra miklu tjóni; bæði lík­am­lega og and­lega. Þá er einnig aug­ljóst í gögnum máls­ins að síma Páls var stolið af sjúkra­beði hans og sím­inn fluttur upp í höf­uð­stöðvar RÚV í Efsta­leiti, þar sem hann var afrit­aður og afritin síðan notuð til að byggja upp sam­ræmdan frétta­flutn­ing Stund­ar­innar og Kjarnans, eins og þeir miðlar hétu þá (í dag heita sam­ein­aðir miðlar Stund­ar­innar og Kjarnans, Heim­ildin. Innskot blm). Þannig virð­ast blaða­menn­irnir hafa verið í ákveðnu sam­krulli með byrl­ar­anum – það lítur alla­vega þannig út.“

Frosti bætir því við að „sam­kvæmt gögnum máls­ins höfðu blaða­menn­irnir í aðdrag­anda byrl­un­ar­innar keypt á kenni­tölu RÚV sér­stakt sím­tæki til að geta afritað síma Páls á meðan hann lægi með­vit­und­ar­laus á spít­al­anum.“

Hann segir einnig að „þeir voru meira að segja svo útsmognir að kaupa sím­tæki nákvæm­lega sömu teg­undar og far­sími Páls var; völdu í hann nán­ast sama síma­númer til þess að sam­skipti byrlar­ans við starfs­menn RÚV gæti gætu verið mis­skilin sem sam­skipti við Pál þegar yfir­lit sím­reikn­ings­ins yrði skoðað. Þá er auð­vitað orðið morg­un­ljóst að þetta sam­krull er tals­vert umfangs­meira heldur en það að blaða­maður taki við gögnum frá heim­ild­ar­manni og vinni upp úr þeim fréttir – þetta er allt annað mál og mun alvar­legra. Þarna koma blaða­menn að skipu­lagn­ingu máls áður en byrlað er fyrir skip­stjór­anum; áður en síma hans er stolið; og sjá svo sjálf um að stela úr sím­anum – og það í húsa­kynnum Rík­is­út­varps­ins. Þetta gerðu þeir á sama tíma og starfs­menn gjör­gæslu Lands­spít­al­ans voru hinu megin við göt­una að berj­ast við að halda lífi í Páli. Það kemur aug­ljós­lega fram í sjúkra­skýrslum Páls.“

Frosti spyr:

„Voru þetta allt saman virki­lega bara til­vilj­anir? Að uppi á RÚV hafi verið keyptur sams­konar sími og Páll skip­stjóri átti viku áður en byrlað var fyrir honum; og að valið hafi verið í hann nán­ast sama síma­númer og Páll var með? Að sá sami sími hafi síðan verið not­aður til að vera í sam­skiptum við kon­una sem á ákveðnum tíma­punkti við­ur­kenndi bæði byrl­un­ina og að hafa komið stolnum síma Páls í hendur blaða­manna; gæti allt þetta virki­lega hafa verið til­vilj­anir? Vissu­lega kann það að vera, en eitt­hvað segir mér að það sé mjög ósenni­legt.“

Frosti hefur undir höndum tölvu­pósts­sam­skipti lög­reglu við RÚV – sem sjá má hér að neðan:

Frosti vekur athygli á því að „aðeins tveimur vikum eftir þessi ofan­greindu tölvu­pósta­sam­skipti lög­regl­unnar og Stefáns Eiríks­sonar Útvarps­stjóra kom það síðan eins og þruma úr heið­skíru lofti að Þóra Arn­órs­dóttir rit­stjóri Kveiks væri að hætta hjá RÚV – mann­eskja sem er marg­verð­laun­aður blaða­maður og virt­ist una sér vel í þessu starfi; allt í einu var til­kynnt að hún væri að hætta – tveimur vikum eftir þessi sam­skipti. Kveikur kemur ekki með neinar fréttir af þessu – RÚV kemur ekki með fréttir af þessu; frétt­irnar eru unnar í Stund­inni og Kjarn­anum – RÚV virð­ist bara hafa verið í þessu hlut­verki að afrita sím­ann og láta svo frá sér frétta­efnið – sem bendir auð­vitað til þess að þegar málið var orðið svo alvar­legt að skip­stjór­inn liggur óvígur eftir inni á spít­ala á gjör­gæslu í marga daga að þá hafi Þóra Arn­órs­dóttir og starfs­menn RÚV áttað sig á því að þetta er of alvar­legt mál; að það sé best að láta Stundina og Kjarnann gera þessar fréttir, því ann­ars erum við í djúpum skít.“

„gæti verið mis­skilin í sam­skiptum við Pál“ á að vera: „“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas