Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðs­dómur Vestur­lands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldis­brot gegn sambýlis­konu sinni

Dómur er fallinn
Dómur er fall­inn Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint. Mynd: Shutterstock

Karlmaður hefur verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir ítrekað og alvarlegt ofbeldi gegn sambýlis­konu sinni á tíma­bilinu frá nóvember 2025 til mars 2026. Hann játaði sök fyrir Héraðs­dómi Vestur­lands og samþykkti jafnframt að greiða brotaþola 4,4 milljónir króna í miska­bætur.

Samkvæmt dóminum beitti maðurinn konuna ítrekuðu ofbeldi í þremur aðskildum tilvikum.

Í fyrsta atvikinu, í lok nóvember 2025, réðst hann á hana utandyra þar sem hann sló hana ítrekað í andlitið, sparkaði í hana, tók hana hálstaki, kastaði henni í jörðina og dró hana eftir jörðinni. Konan hlaut áverka á andliti, hálsi, höndum og fótum auk þess að verða fyrir mikilli geðs­hræringu.

Í janúar 2026 tók hann harkalega utan um kjálka og háls hennar og kreisti, auk þess sem hann sló hana í höfuðið. Við árásina hlaut hún mar á hálsi og áverka á höfði.

Í mars sama ár réðst hann síðan á konuna á ný með því að slá hana í andlitið, þrýsta höfði hennar að hörðu yfirborði og taka hana hálstaki. Afleiðingarnar voru meðal annars kúla á enni, sár á nefi, gat á hljóð­himnu með blæðingu, gripför á hálsi og marblettir víðs vegar um líkamann.

Auk ofbeldis­brotanna var maðurinn sakfelldur fyrir að aka vöru­bifreið sviptur ökurétti í nóvember 2025. Hann missti stjórn á bifreiðinni og hafnaði utan vegar skammt frá gatna­mótum Suður­landsvegar og Ölfusvegar.

Við ákvörðun refsingar lagði dómurinn áherslu á alvarleika ofbeldisins, sérstak­lega að árásirnar beindust ítrekað að höfði og hálsi brotaþolans, sem gæti haft mjög alvarlegar afleiðingar. Honum var þó gefið til málsbóta að hafa játað brotin tafar­laust og samþykkt bóta­kröfuna. Verjandi hans upplýsti jafnframt að maðurinn hefði leitað sér aðstoðar vegna áfengis­vanda og snúið við blaðinu.

Dómurinn taldi þó brotin það alvarleg að ekki kæmi til greina að skilorðs­binda refsinguna.

Brota­þolan fær dæmdar 4,4 milljónir króna í miska­bætur auk vaxta og dráttar­vaxta. Þá var manninum einnig gert að greiða tæpar 2,7 milljónir króna í sakar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.
Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Áhorfandi sagði táningsstúlku sem dæmdi leikinn að drepa sig.

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík