Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Háskóli Íslands svarar engu um hegðun Hannesar: „Skýrt dæmi um baráttu milli góðs og ills“

Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son.

Á mánu­dag­inn í síð­ustu viku var hald­inn fyr­ir­lestur í Þjóð­minja­safni Íslands en sá sem tal­aði á fyr­ir­lestr­inum er Ely Lassman. Hann er fyrr­ver­andi her­maður í ísra­elska hernum. Fyr­ir­lest­ur­inn bar nafnið Ísrael, Arabaríkin og Vest­ur­veldin.

Fyr­ir­lest­ur­inn var lok­aður almenn­ingi en á honum útskýrði Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor emeritus við Háskóla Íslands, að það hafi verið gert af örygg­is­á­stæðum. Aflýsa þurfti fyr­ir­lestri Lassman fyrr á þessu ári í King’s College í London í kjöl­far líf­láts­hót­anna sem hann fékk.

Í fyr­ir­lestr­inum sagði Lassman meðal ann­ars að Ísrael væri eitt þeirra ríkja sem tryggja hvað mest mann­rétt­indi í heim­inum og kall­aði Mið-Aust­ur­lönd eitt frum­stæð­asta svæði heims. Einnig lýsti hann því yfir að árás Hamas þann 7. októ­ber 2023 kunni að vera sú versta sem um getur. „Ég tel að frá síð­ari heim­styrj­öld­inni, frá hel­för­inni, sé ekki til svo skýrt dæmi um bar­áttu milli góðs og ills,“ hefur Morg­un­blaðið eftir Lassman.

Vildi tala þar til Hannes var nefndur á nafn

Mannlíf hafði sam­band við Þjóð­minja­safn Íslands til að spyrj­ast fyrir um fyr­ir­lest­ur­inn en fram komi í máli Krist­ínar Hrafn­kels­dóttur, fram­kvæmda­stjóra þjón­ustu­sviðs Þjóð­minja­safns Íslands, að fyr­ir­lest­ur­inn væri ekki á vegum safns­ins og taldi við­burð­inn vera á vegum Hannesar og Háskóla Íslands því að sal­ur­inn hafi verið pant­aður í gegnum net­fang hans hjá skól­anum.

Hannes hefur sjálfur sagt að hann hafi staðið fyrir fund­inum og nefnir Háskóla Íslands hvergi í því sam­hengi.

Mannlíf hafði sam­band við Jón Örn Guð­bjarts­son, sviðs­stjóra mark­aðs- og sam­skipta­sviðs hjá Hí, til spyrja hvort það væri eðli­legt að Hannes noti net­fang sitt hjá skól­anum til per­sónu­legra erinda­gjörða. Jón Örn virt­ist til í að spjalla við blaða­mann en um leið og hann heyrði nafn Hannesar bað hann um að fá að hringja til baka síðar um dag­inn en gerði ekki. Mannlíf hefur síðan ítrekað reynt að ná í Jón Örn en sím­tölum ekki verið svarað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn