Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Aðstandendur heimildarmyndar um Hrunið vilja af þakkarlistanum: „Myndin er hneyksli að mínum dómi“

Þorvaldur Gylfason.
Þor­valdur Gylfason.

Þor­valdur Gylfason krefst þess að nafn hans verði tekið af þakk­arlista heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Ísland.

Töluverð óánægja hefur ríkt meðal fólks sem tengd­ist á fyrri stigum gerð heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem Rík­is­út­varpið birti í tveimur hlutum þann 8 og 9 októ­ber, 15 árum eftir Hrunið. Hafa efn­is­tök og sjón­ar­horn verið harð­lega gagn­rýnd, en sam­kvæmt Sam­stöð­inni er stærsti hluti mynd­ar­innar lagður undir varnir banka­manna.

Sænski leik­stjór­inn Bosse Lindquist sagði sig til að mynda frá verk­inu snemma vegna þess hversu ósáttur hann var við þá stefnu sem SagaFilm, fram­leiðslu­fyr­ir­tækið sem gerði mynd­ina, vildi fara með mynd­ina. Þrátt fyrir það er hann nefndur sem einn af þremur leik­stjórum heim­ild­ar­mynd­ar­innar, ásamt Margréti Jón­as­dóttir núver­andi gæða­stjóra RÚV og Jakobi Hall­dórs­syni, en hann ku hafa haldið að myndin yrði ekki gerð.

Þá hefur Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Heim­ild­ar­innar, kraf­ist þess að nafn hans yrði tekið út en hann er nefndur sem ráð­gjafi í kredit­list­anum en hann segir mynd­ina ekki í nokkru sam­ræmi við ráð­gjöf hans.

Sá nýjasti til að krefj­ast þess að nafn sitt verði tekið úr kredit­lista mynd­ar­innar er Þor­valdur Gylfason, pró­fessor í hag­fræði. Hér má lesa Facebook-færslu frá honum frá því í dag:

„Ég sá mig knú­inn til að senda Stefáni Eiríks­syni útvarps­stjóra svo hljóð­andi bréf fyrir stundu:

„Stefán Eiríks­sonút­varps­stjór­iRÚ­VÉg skrifa til að krefj­ast þess að nafn mitt verði numið burt án tafar af lista með nöfnum þeirra sem þakkað er í lok beggja hluta heim­ilda­mynd­ar­innar Baráttan um Ísland sem sýnd var í RÚV 8. og 9. októ­ber s.l. Myndin er hneyksli að mínum dómi og mér alls­endis óvið­kom­andi.Með virð­ingu,Þor­valdur Gylfa­son­pró­fessor emeritus­Há­skóla Íslands

11. októ­ber 2023″.“

Samkvæmt Sam­stöð­inni er stjórn­ar­for­maður SagaFilm Ragnar Björn Agn­ars­son, sem er æsku­vinur Jóns Ásgeirs Jóhanns­sonar, sem birt­ist tals­vert í heim­ild­ar­mynd­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum