Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Þegar Hemmi Gunn mætti ekki í beina útsendingu: „Þetta var um páska og ég orðinn yfirkeyrður“

Það var erfitt að ná símtali við Hemma á þessum árum, það var alltaf á tali.
Það var erfitt að ná sím­tali við Hemma á þessum árum, það var alltaf á tali.

Það eru páskar 1994 og vin­sæl­asti þáttur Íslands að hefj­ast í beinni útsend­ingu. Þjóðin er nán­ast öll sem límd við skjá­inn en þessi þáttur verður öðru­vísi en þeir hafa verið því þátta­stjórn­and­inn mætir ekki. Þess í stað biður Vala Matt áhorf­endur í sal og heima í stofu vel­komna og til­kynnir að hún muni hlaupa í skarðið fyrir þátta­stjórn­and­anum í þetta skiptið. Hemmi Gunn var fall­inn.

Það var bara einn Hemmi Gunn.

Í næsta þætti tóku áhorf­endur and­köf því aftur virt­ist hann fall­inn en Unnur Steins­son birt­ist í stjórn­anda­sæt­inu. Síminn hringir og á lín­unni er Hemmi Gunn. Segist hann vera hátt uppi í augna­blik­inu og spurði Unni hvort hún gæti leyst hann aðeins af. En hann reynd­ist ekki vera fall­inn, heldur var hann staddur í flug­vél á leið í fall­hlífa­stökk. Kom hann svo svíf­andi inn í þátt­inn, öllum til mik­illar gleði.

Birgir Guð­munds­son rit­aði meðal ann­ars um fall­hlífa­stökk Hemma í Tímanum á sínum tíma:

Trúlega eru flestir sam­mála um að Hemma Gunn hafi tek­ist vel upp í þætt­inum sínum síð­asta vetr­ar­dag. Margir voru for­vitnir að sjá hvernig hann myndi fleyta sér yfir vand­ræða­lega augna­blikið í upp­hafi, þegar þjóðin beið með önd­ina í háls­inum eftir útskýr­ingu frá honum á for­föll­unum í næst­síð­asta þætt­inum. Flestir töldu víst ein­sýnt að Hemmi kæmi með eitt­hvað meira en við­talið í Dags­ljósi þar sem hann gerði, af aðdá­an­legu hisp­urs­leysi, grein fyrir veik­leika sínum gagn­vart áfengi.

Og Hemmi sveik engan. Þegar Unnur Steins­son birt­ist í stjórn­anda­sæt­inu en ekki Hermann tók áhorf­enda­skar­inn and­köf fyrir framan sjón­varps­tækin og spurði: „Er Hemmi dott­inn aftur?“ En svo var auð­vitað ekki, þetta var bara létt grín hjá Hemma, sem fékk menn undir eins til að fyr­ir­gefa fyrri for­föll með því að mæta á svæðið með enn stór­feng­legri hætti en áður — hann sveif inn í þátt­inn úr háloft­unum fyrir ofan höf­uð­borg­ina í fall­hlíf og aubvitað í beinni útsend­ingu.

Í Helg­ar­blaði DV árið 1997 birt­ist við­tal við Hemma Gunn sem þá hafði verið tek­inn af dag­skrá Rúv með Á tali hjá Hemma Gunn. Þar ræddi hann meðal ann­ars um það þegar hann mætti ekki.

Hemmi Gunn með epískt bindi.

Þegar hann mætti ekki

Hemmi hefur til margra ára ekki verið að fela þá stað­reynd að hann eigi við áfeng­is­vanda­mál að stríða. Hefur ólíkt mörgum öðrum getað tjáð sig opin­skátt um áfengið en fyrir vikið verið stöðugt á milli tann­anna á fólki. Ótrú­leg­ustu sögur fóru t.d. á kreik þegar hann mætti ekki í einn þátt­inn og Vala Matt var fengin í hans stað. „Ég var búinn að vera með um hund­rað þætti í átta eða níu ár þegar kemur þáttur sem ég mæti ekki til
leiks. Það þætti á flestum stöðum ekki tíð­indum sæta ef maður mætir ekki í vinn­una í einn dag á tæpum tiíu árum. Þetta var um páska og ég orð­inn yfir­keyrður. Var búinn að und­ir­búa þátt­inn allan þegar ég gleymdi mér og fékk mér í glas. Ég var ekki með það góða heilsu til að stjórna þessum þætti og Vala hljóp í skarðið af rögg­semi og mynd­ar­brag. Sögurnar fóru af stað og ég átti að hafa gert ótrú­leg­ustu hluti, sem því miður bitna á börn­unum mínum. Ég held að ég sé fyrsti maður sem þurfti að mæta í Dagsljós til að svara fyrir það að hafa drukkið vín. Það gerði ég ein­göngu barn­anna minna vegna því þau voru farin að fá ótrú­leg­ustu sögur frá for­eldrum skóla­systk­ina sinna. Þau vora óvarin en ég orð­inn brynj­aðri.

Eðlilega hefði ég átt að fá gula spjaldið fyrir að mæta ekki til leiks en síð­degis þann dag sem þátt­ur­inn var sýndur fékk ég risa­blóm­vönd með und­ir­skrift hvers ein­asta starfs­manns Sjón­varps­ins með óskum um skjótan bata. Þetta var hlutur sem ég kunni að meta,“ segir
Hemmi og hugsar hlýtt til fyrrum
sam­starfs­manna sinna.

Sjá má brot úr þætt­inum sem Vala Matt stýrði í fjar­veru Hemma hér.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst 1. júní 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto