Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Yfirlýsing Öfga vegna viðtals við Ingó veðurguð: „Þetta er handrit meintra ofbeldismanna“

Öfgar
Öfgar

Baráttu­hópurinn Öfgar hefur sent frá sér yfir­lýsingu vegna viðtals sem birtist við Ingólf Þórarinsson, oftast kallaður Ingó veðurguð, í Stundinni nú um helgina. Þar svar Ingólfur af sér allar ásakanir og sagðist ekki sekur af þeim ávirðingum sem bornar hafi verið fram í hans garð. Ingólfur sagði frásagnirnar uppspuna og flökku­sögur. Hann sagðist aldrei myndu gangast við þeim og að hann hafi ekki farið í nafla­skoðun eða hugsað sér að breyta samskiptum sínum við konur.

Ingólfur Þór­ar­ins­son

Yfir­lýsing Öfga í heild sinni:

Að gefnu tilefni.

Um helgina birtist viðtal við Ingólf Þórarinsson þar sem hann segist saklaus af öllum nafn­vernduðum frásögnum Öfga. 

Öfgar hafa aldrei, og munu aldrei, staðfest um hvaða tónlistar­mann ræðir. Ingólfur hefur séð sjálfur um það að bendla sig við þessar frásagnir. 

Hann sendi meðlimi okkar, Ólöfu Töru, kröfubréf fyrir vanga­veltur áður en staðfest var hver færi með brekku­sönginn eða komin dagskrá á Þjóðhátíð yfir höfuð. Þar bendlaði hann sjálfan sig við ummæli hennar sem meintur nauðgari. 

Hann sendi annað kröfubréf á aktívista sem segir að þjóð­þekktur tónlistamaður hafi nauðgað sér. Þar bendlaði hann sjálfan sig aftur sem meintan nauðgara. 

Ingólfur hefur frá upphafi notað fjölmiðla til að hóta. Meðal annars hefur hann hótað að kæra nafn­verndaðar frásagnir sem hann kannast samt sem áður ekkert við.

Um leið og Ingólfur bendlaði sjálfan sig við frásagnirnar fór fólk að segja sína reynslu af meintri hegðun hans. Vitneskja um meinta hegðun Ingólfs er hægt að finna víðsvegar á netinu, t.d. á bland þræði frá árinu 2009 og í sketch-þætti hjá Steinda frá sama ári. 

Út frá samfélags­legu umræðunni sem varð í kjölfarið benti meðlimur okkar, Sindri Þór, á hversu siðferðis­lega rangt það sé að full­orðnir menn geti á bak við lögin riðið börnum. 

Ingólfur sendi honum þá líka kröfubréf og stefndi honum fyrir meiðyrði. 

Þessi hegðun bendir ekki til þess að hann sé reiðu­búinn til að horfast í augu við það orð sem hann hefur á sér meðal almennings.

Ekki svo löngu áður en nafn­verndaðar frásagnir Öfga birtust sagði Ingólfur í viðtali hjá öðrum meintum geranda að hann muni lítið frá þeim tíma sem hann drakk illa og notaði orðið minnis­leysi. 

Nokkrum dögum eftir að frásagnirnar birtust heldur hann því fram að hann viti hver hann er, hvað hann hafi gert og segir að frásagnirnar séu árás á sína persónu. Hvernig getur hann staðfest að hann viti hvað hann hefur gert þegar hann hefur lýst því yfir í viðtali að muna ekki margt vegna áfengis­neyslu?

Ingólfur staðhæfir að einhver hafi sagt honum að þessar sögur hafi verið sendar til þess að athuga hvort að sögurnar yrðu birtar, þetta kallast gróusögur. 

Við vitum sjálf hvernig frásagnir um einn þjóð­þekktan tónlistar­mann bárust okkur. Við vísum þessum rógburð því alfarið á bug. 

Það er grafal­varlegt að einstaklingur ætli ekki í nafla­skoðun eftir að hafa verið svo sann­færður um að svona alvarlegar ofbeldis­sögur sem varða margar hverjar á við hegningarlög séu um hann sjálfan. 

Svo sann­færður að hann fer í drottingarviðtal, nýtir sér valda­stöðu sína til að ógna og kærir fólk sem stendur með þolendum. 

Við þekkjum öll þessa taktík. 

Þetta er handrit meintra ofbeldis­manna. 

Öfgar; Þórhildur Gyða, Hulda Hrund, Helga Ben, Tanja Ísjförð, Ólöf Tara og Ninna Karla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim