Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Kvikmyndagerðarmenn brjálaðir út í fréttamann RÚV: „Svakalega ósmekklegt“

Margrét er ósátt með Hallgrím – myndin er samsett
Margrét er ósátt með Hallgrím – myndin er sam­sett

Margrét Örn­ólfs­dóttir sagði Hallgrím sýna hand­rits­höf­undum skiln­ings­leysi.

Hand­rit­is­höf­und­ur­inn Margrét Örn­ólfs­dóttir sagði frá því færslu á Facebook að hún væri mjög ósátt við orð Hall­gríms Ind­riða­son, frétta­manns RÚV, í þætt­inum Heim­kviðum sem er útvarpað á Rás 1. Þar sagði Hall­grímur eft­ir­far­andi um verk­fall hand­rits­höf­unda í Hollywood:

„Hand­rits­höf­undar eru, eins og nafnið gefur til kynna, þeir sem skrifa setn­ing­arnar ofan í leik­ar­ana – hvort sem þetta eru hnyttin til­svör í gam­an­þáttum eða dramat­ísk skila­boð í stór­myndum.“

Óhætt er að segja að Margrét sé gíf­ur­lega ósátt við þessi orð Hall­gríms og taldi þau svaka­lega ósmekk­leg. „Öööö, nei… Hall­grímur Ind­riða­son,“ sagði Margrét. „Hand­rits­höf­undar skapa sög­una sem á að segja hverju sinni – sögu­heim­inn, per­són­urnar, atburða­rás­ina, and­rúms­loftið, átökin, vend­ing­arnar, skila­boðin… – og leggja þannig grunn­inn sem allir aðrir sem koma að gerð kvik­mynd­ar­innar byggja á.

Hand­rits­höf­undur lýsir öllu sem sést, heyr­ist, ger­ist, er sagt í kvik­mynd­inni. Hann skrifar auð­vitað líka sam­tölin, en ef það væri ekk­ert umfram það hefðu leik­ar­arnir ekk­ert að byggja á í sinni vinnu, leik­stjór­arnir engu að leik­stýra o.s.frv,“ hélt hún áfram.

„Orða­lagið að „skrifa setn­ingar ofan í leik­ar­ana…“ er síðan alveg svaka­lega ósmekk­legt og lýsir miklu skiln­ings­leysi á bæði vinnu leik­ara og hand­rits­höf­unda.“

Margir af þekk­ustu hand­rits­höf­undum og kvik­mynd­ar­gerð­ar­mönnum taka undir með Margréti í athuga­semda­kerf­inu. „Var þessum manni kippt köldum inn af göt­unni til að ræða þetta eða er þetta útvarps­maður val­inn til að fjalla um við­fangs­efnið? Ef um hið síð­ara er að ræða þarf aug­ljós­lega eitt­hvað að skerpa á starfs­kröfum á RÚV,“ sagði Ragnar Bragason.

„Úff einmitt, ég hjó eftir þessu og öskr­aði NEEEIII!!! á útvarpið. Þetta er eins og að halda því fram að útvarps­menn í „frétta­skýr­inga­þætti sem fjallar á ítar­legan og lif­andi hátt um heims­málin“ mæti óund­ir­búnir í vinn­una, kveiki á mæknum og byrji bara að tala…,“ sagði Óskar Jónasson.

Hægt er að lesa alla umræð­una hér fyrir neðan

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum