Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Gagnrýna vinsælan pistil Þorgríms: „Að gera lítið úr vanlíðan unglinga getur verið skaðlegt“

Sál­fræð­ing­arnir Linda Björk Odds­dóttir og Berglind Brynj­ólfs­dóttir gagn­rýndu grein Þorgríms Þrá­ins­sonar í aðsendum pistil sem birt­ist í dag. Ástsæli rit­höf­und­ur­inn og fyr­ir­les­ar­inn Þor­grímur vakti mikla athygli með grein sinni þar sem hann ræddi um van­líðan íslenskra ung­menna og barna, slæman orða­forða þeirra, og óæski­leg áhrif snjall­síma­notk­unar. Í kjöl­farið ræddi hann einnig um mál­efnið í við­tali við Bítið á Bylgj­unni. Ótal margir deildu grein Þorgríms og tóku undir með honum en hafa nú nokkrir aðilar stigið fram og sagst ósam­mála rit­höf­und­inum.

„Und­ir­rit­aðar fagna umræð­unni og geta tekið undir sumt af því sem fram kom m.a. mik­il­vægi þess að koma böndum á skjá­tíma barna og ung­linga og kenna þeim að umgang­ast tækin og miðl­ana öllum til heilla. Við tökum líka undir það með Þorgrími að miklar og oft óraun­hæfar kröfur séu gerðar til kenn­ara í dag,“ segja sál­fræð­ing­arnir og taka í fyrstu undir með Þorgrími.

„Í við­tal­inu vísar Þor­grímur í glæru úr fyr­ir­lestrum sínum, með þeim upp­lýs­ingum að 43% nem­enda í ung­linga­deildum seg­ist ekki líða vel. Ekki kemur fram hvaðan sú tala er fengin en við gerum ráð fyrir að hann vísi þar í kann­anir Skólapúls­ins. En hvað þýðir það að líða ekki vel? Við sem hittum börn og ung­linga alla daga í okkar vinnu, fáum á okkar borð allt frá vægum vanda yfir í alvar­lega van­líðan. Öll myndu þó blessuð börnin taka undir að þeim liði ekki vel.

Það að setja alla van­líðan undir einn hatt er mikil ein­földun. Rann­sóknir síð­ustu ára benda vissu­lega til að kvíði og dep­urð fari vax­andi meðal ung­lings­stúlkna á meðan líðan ung­lings­drengja virð­ist standa meira í stað. Nokkrar til­gátur hafa þegar komið fram um ástæðu þess sem verið er að rann­saka nánar,“ skrifa þær og bæta við:
„Í starfi okkar hittum við fjölda barna og ung­linga sem glíma við kvíða og þung­lyndi. Sum þeirra hafa upp­lifað áföll, hafa orðið fyrir ein­elti, búa við erf­iðar aðstæður eins og t.d. við lík­am­leg eða and­leg veik­indi for­eldra o.s.frv. Í slíkum til­vikum er mik­il­vægt að sýna sam­kennd og við­ur­kenna erf­iða lífs­reynslu og áhrif hennar.

Við hittum að sjálf­sögðu líka börn og ung­linga sem … eru of mikið í snjall­tækjum og upp­lifa van­líðan af van­virkni, svefn­leysi og skorti á tengslum við annað fólk. Þar fellst svarið líkt og Þor­grímur bendir á m.a. í að auka virkni og koma böndum á skjá­tíma með virkri aðkomu for­eldra. Grunnur í allri okkar vinnu er að kom­ast að því af hverju van­líðan stafar áður en farið er af stað við að finna lausnir. Það að gera lítið úr van­líðan ung­linga sem oft hafa gengið í gegnum margt er ekki bara ein­földun heldur getur bók­staf­lega verið skað­legt.“ Pistil­inn má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum