Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

„Litlu stóru mál“ Sönnu – Vill endurskoða styrki til stjórnmálasamtaka

Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúi Mynd: Sigtryggur Ari

Mannlíf vildi vita meira um stór og mik­il­væg mál­efni sem hafa ekki fengið mikið pláss í umræð­unni hingað til og sendi tíu spurn­ingar á alla for­menn og leið­toga þeirra flokka sem eru í fram­boði og mun Mannlíf birta svör allra þeirra sem svör­uðu. Við nefnum þessi mál­efni „Litlu stóru málin“

Hér fyrir neðan má lesa svör Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, odd­vita Sós­í­alista­flokks­ins.

1. Vilt þú leyfa aukið frelsi í veðmálastarfsemi á Íslandi og af hverju?

Nei, mér finnst það eigi ekki að opna á frek­ari veð­mála­starf­semi í ljósi þess sem við höfum heyrt um spilafíkn og slæmar afleið­ingar spilafíknar. Ég spyr til baka: Frelsi fyrir hvern?

2. Hver er þín afstaða gagnvart réttindabaráttu trans fólks á Íslandi?

Ég er fylgj­andi bar­átt­unni, bakslagið er veru­legt.

3. Hvað finnst þér um að ríkið styrki listir og menningu?

Gott mál, við þurfum list og menn­ingu til að næra sál­ina.

4. Ert þú fylgj­andi því að Ísland verði gert að einu kjör­dæmi í Alþing­is­kosn­ingum og af hverju?

Ég vil jafnt vægi atkvæða óháð búsetu því ég tel það rétt­lát­ara.

5. Hversu mikilvæga telur þú kristni vera í íslensku samfélagi í dag?

Það fer eftir hverjum og einum, hvað fólk trúir á.

6. Hvað finnst þér um aðstöðu til íþróttaiðkunar á Íslandi?

Það þarf að bæta hana. Bæði hvað varðar aðbúnað þannig að mann­virki séu til staðar í nærum­hverf­inu og hvað varðar aðgengi, þannig að allir hópar sam­fé­lags­ins geti tekið þátt.

7. Hvað finnst þér um fjárhagsstuðning ríkisins við stjórnmálasamtök?

Mér finnst það þurfa að end­ur­skoða það, of háar upp­hæðir fara til stjórn­mála­sam­taka. Sós­í­alistar hafa nýtt þennan stuðn­ing m.a. í að styðja við upp­bygg­ingu fjöl­mið­ils sem er í eigu hlust­enda, áhorf­enda og les­enda og þá hefur hluti farið í að efla hags­muna­bar­áttu þeirra hópa sem standa veikt fjár­hags­lega.

8. Hvað finnst þér um blóðmerahald?

Mér finnst það vera hryll­ingur.

9. Telur þú að þjóðin eigi að fá að kjósa um inngöngu í ESB og af hverju?

Ef það er ríkur vilji hjá þjóð­inni til þess að kjósa þá finnst mér að það eigi að setja málið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Mér finnst mik­il­vægt að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur séu nýttar í málum er varða almanna­heill. Ef að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla færi fram þá finnst mér mik­il­vægt að fræðsla fari fram fyrir kosn­ing­una um mögu­lega kosti og galla.

10. Hver er þín afstaða til stjórnarskrá Íslands?

Við eigum nýja stjórn­ar­skrá sem á að taka gildi. Alþingi boð­aði til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um nýja stjórn­ar­skrá. Yfir 2/3 hlutar kjós­enda (66,9%) sam­þykktu í atkvæða­greiðsl­unni að til­lögur sem fyrir þá voru lagðar skyldu verða grund­völlur nýrrar stjórn­ar­skrár Íslands. Við eigum nýja stjórn­ar­skrá sem á að taka gildi. Í fram­hald­inu er eðli­legt að umgang­ast hana sem lif­andi sam­fé­lags­sátt­mála, sem getur tekið breyt­ingu með þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn