Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimildin í vikulega útgáfu – Enginn eigandi fer með meira en 8% hlut

Ritstjórn Heimildarinnar.
Rit­stjórn Heim­ild­ar­innar.

Aðstand­endur Sameinaða útgáfu­félagsins, sem varð til við sameiningu Kjarnans og Stundarinnar í janúar, hafa ákveðið að hefja vikulega prent­útgáfu á áskriftar­blaði Heimildarinnar frá og með 21. apríl.

Efling prent­útgáfunnar hefur verið í skoðun síðustu vikur, en endanleg ákvörðun er tekin sem viðbragð við þeirri skerðingu á innlendri dagblaða­útgáfu sem orðin er við fráhvarf Frétta­blaðsins.

Í gær boðaði Lilja Alfreðs­dóttir, menningar- og viðskipta­ráðherra, að ríkis­stjórnin stefndi á að skuld­binda sig í skattalegar aðgerðir til þess að hvetja til áskrifta að fjöl­miðlum. Þar með er líklegt að áskriftar­fréttablöð festi sig enn frekar í sessi.

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir.

Markmið Heimildarinnar er að efla enn ritstjórnina og vinna að greinandi og samfélags­lega gagnlegum umfjöllunum. Mat aðstand­enda hennar er að með vikulegri útgáfu sé hlutverki Heimildarinnar betur framfylgt.

Sameinaða útgáfu­félagið er í dreifðu eignar­haldi, þar sem enginn eigandi fer með meira en 8% hlut, og leggur áherslu á sjálf­stæði frá hagsmuna­blokkum og stjórnmála­öflum.

Til þess að tryggja sjálf­stæði ritstjórnar til langs tíma starfar Heimildin eftir eigin kröfum um að stunda sjálf­bæran rekstur og starfa þannig á forsendum almennings og áskrifenda fremur en tiltekinna fjár­mögnunar­aðila.

Fram að þessu hefur Heimildin komið út tvisvar í mánuði og forveri hennar í prent­útgáfu, Stundin, komið út einu sinni til tvisvar í mánuði.

Heim­ildin kemur út viku­lega. Frábær fjöl­mið­ill sem veitir svo sann­ar­lega gott aðhald.

Kannanir meðal áskrifenda hafa áður gefið til kynna að stærstur hópur kýs vikulega prent­útgáfu.

Hægari útgáfu­tíðni verður áfram yfir sumar­tímann, með mánaðar­legum, veglegri prent­útgáfum, í þeim tilgangi að tryggja sumar­leyfi og sjálfbærni útgáfunnar. Reynslan af breytingunni verður síðan metin heildrænt út frá áhrifum hennar á ritstjórn Heimildarinnar og viðbrögðum lesenda hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim