Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sigurvin: „Til að virða val ung­menn­is­ins skráðu for­eldr­ar barnið nauðbeygt í þjóðkirkj­una“

Séra Sigurvin Lárus Jónsson er prestur við Fríkirkjuna í Reykjavík; hann segir að fermingar­barni er fermdist í Grafar­vogskirkju í ár – stærsta söfnuði þjóð­kirkjunnar – hafi verið gert að skrá sig úr Fríkirkjunni og í þjóð­kirkjuna til að geta fermst þar.

„Til að virða val ung­menn­is­ins skráðu for­eldr­ar þess barnið nauðbeygt í þjóðkirkj­una og leiðréttu síðan trú­fé­lags­skrán­ing­una dag­inn eft­ir í sam­ráði við ung­mennið.“

Þetta segir séra Sigurvin í skoðana­grein í Morgun­blaðinu í dag.

Séra Sigurvin bendir á í grein að fermingin sé mikil­vægur áfangi í lífi ungs fólks.

„Það dýr­mæt­asta sem full­orðið fólk get­ur miðlað ung­menn­um sín­um á ferm­ing­ar­dag­inn er víðsýni og samstaða með þeirri ákvörðun sem ung­mennið tek­ur. Í barna- og ung­linga­starfi voru börn sem til­heyrðu öðrum kirkj­um eða trú­ar­brögðum, jafn­vel mús­lím­ar og búdd­ist­ar, og á þeim árum var ekki gerð krafa um trú­fé­lagsaðild til að vera með. Það er enda eðli þjóð­kirkju að þar sé vítt til veggja og hátt til lofts.“

Bætir við:

„Ástæðan var sögð fjár­hags­leg, að ung­mennið mætti ekki njóta þjón­ustu Grafar­vogs­kirkju án þess að vera skráð í trú­fé­lagið, en eng­in krafa var gerð um að for­eldr­arn­ir skiptu um trú­fé­lag,“ segir séra Sigurvin sem bætir því við að þessi breyting sé hreinlega dapurleg.

„Ef prest­ar Grafar­vogs­kirkju líta svo á að ferm­ing­in sé viður­kenn­ing á trú­fé­lagsaðild er það þröng sýn á ferm­ing­una. Ef kraf­an er trú­fræðileg má benda á að játn­ing­ar­lega er eng­inn mun­ur á Frí­kirkj­unni og þjóðkirkj­unni, þótt áhersl­ur og stjórn­skipu­lag séu annað. Ung­menni eiga ekki að vera sett í þá stöðu að velja á milli þess að fylgja fé­laga­hópn­um og fjöl­skyldu sinni í trú­fé­lagsaðild. Þjóðkirkj­an get­ur ekki sam­tím­is sagst virða trúfrelsi og fjöl­menn­ingu og gert þá kröfu að öll þau sem þiggja þjón­ustu séu meðlim­ir í trú­fé­lag­inu.

Þjóðkirkj­an hef­ur það fjár­hags­lega for­skot á Frí­kirkj­una að laun þjóð­kirkju­presta eru greidd sam­kvæmt samn­ingi við rík­is­sjóð á meðan Frí­kirkj­an greiðir laun sinna presta ein­göngu af trú­fé­lags­gjöld­um meðlima sinna.

Þrátt fyr­ir það rukk­ar Grafar­vogs­kirkja 21.194 krón­ur fyr­ir ferm­ing­ar­fræðslu en ferm­ing­ar­fræðsla Frí­kirkj­unn­ar er öll­um að kostnaðar­lausu. Þá fylgja eng­in trú­fé­lags­gjöld með ferm­ing­ar­ung­menn­um fyrr en við 18 ára ald­ur.“

Segir að endingu:

„Viðkom­andi ung­menni átti fal­leg­an ferm­ing­ar­dag og er nú komið aft­ur í faðm Frí­kirkj­unn­ar en eft­ir sit­ur sú staðreynd að hafa verið gert að skipta um trú­fé­lag, þvert á vilja ung­menn­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim