Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Formaður Afstöðu: „Hættan varðandi þessa tvo einstaklinga var í raun fyrirséð“

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu.
Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu.

Guð­mundur Ingi Þór­odds­son for­maður Afstöðu skrifar grein þar sem þetta kemur fram:

„Afstaða – Félag fanga og ann­arra áhuga­manna um bætt fang­els­is­mál og betrun – vill koma á fram­færi alvar­legum áhyggjum vegna tveggja nýlegra atvika þar sem ein­stak­lingar, sem hafa lokið afplánun í fang­elsi og metnir sem hættu­legir með mikla þjón­ustu­þörf, tengj­ast alvar­legum atvikum und­an­farið.

Hólms­heiði

Í fyrra til­fell­inu er ein­stak­lingur grun­aður um nauðgun og lík­ams­árás skömmu eftir að hafa losnað úr afplánun, en í seinna til­fell­inu er annar ein­stak­lingur grun­aður um mann­dráp.

Hættan af þessum mönnum var þekkt og Afstaða búin að vara ítrekað við hvað myndi hugs­an­lega ger­ast og því hefði verið hægt að koma í veg fyrir að svona færi ef gripið hefði verið til við­eig­andi aðgerða.

Þrátt fyrir ítrek­aðar við­var­anir frá Afstöðu og sér­fræð­ingum hefur verið skortur á úrræðum fyrir þá ein­stak­linga sem losna úr fang­elsi en þurfa sér­tækan stuðn­ing til að tryggja bæði þeirra eigið öryggi og sam­fé­lags­ins alls.

Fang­elsið Litla-Hraun

Þetta úrræða­leysi hefur nú leitt til þess að tvö hörmu­leg mál hafa komið upp.

Til útskýr­ingar má þess einnig geta að báðir menn­irnir voru látnir afplána fulla dóma þar sem hættan sem steðj­aði af þeim var þekkt og því ekki boðið upp á reynslu­lausn, hins vegar hefur það í för með sér að þegar þeim er sleppt er ekk­ert eft­ir­lit haft með þeim.

Sveit­ar­fé­lög eiga sam­kvæmt lögum að bera ábyrgð á þessum úrræðum en ljóst er að þau standa ekki ein undir því, sér­stak­lega þegar um er að ræða smærri sveit­ar­fé­lög. Það hefur leitt til þess að ein­stak­lingar með sér­tækar þarfir eru settir í aðstæður sem eru þeim og sam­fé­lag­inu hættu­legar.

Afstaða hefur ítrekað bent á nauð­syn þess að bæta aðgengi að sér­hæfðum búsetu­úr­ræðum með sér­hæfðu starfs­fólki en ekk­ert hefur verið gert til að leysa þetta vanda­mál.

Hættan varð­andi þessa tvo ein­stak­linga var í raun fyr­ir­séð og þeir eru aðeins hluti af örstækk­andi hópi sem er á leið í sam­fé­lagið eftir afplánun dóma og enn fleiri eru þegar nú frjálsir í sam­fé­lag­inu.

Afstaða krefst taf­ar­lausra aðgerða svo koma megi í veg fyrir frek­ari hörm­ungar.

Stjórn­völd þurfa að bæta aðgengi að úrræðum fyrir ein­stak­linga sem losna úr fang­elsi og tryggja að þeir fái þann stuðn­ing sem þeir þurfa til að aðlag­ast sam­fé­lag­inu á öruggan hátt.

Ef ekki verður gripið til aðgerða nú þegar er hætta á því að fleiri hörmu­leg atvik eigi sér stað.

Afstaða leggur áherslu á að stjórn­völd verði að axla ábyrgð sína á öryggi sam­fé­lags­ins og tryggja að úrræði séu til staðar fyrir þá sem þurfa á þeim að halda. Við munum áfram berj­ast fyrir nauð­syn­legum umbótum á geð­heil­brigð­is­kerf­inu og fulln­ustu­kerf­inu til að koma í veg fyrir frek­ari atvik sem hafa skelfi­legar afleið­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn